Bandaríski streymarinn Kai Cenat var yfir sig hrifinn af íslenskri náttúru þegar hann ferðaðist um landið í beinni útsendingu á laugardag. Við Þríhnúkagíg sagðist hann líklega aldrei hafa séð neitt fallegra og síðar lýsti hann landslaginu eins og að vera á annarri plánetu. Móttökurnar í Reykjavík komu honum líka á óvart, þótt hann hefði síður reiknað með að missa hattinn sinn í mannþrönginni.
Cenat er 24 ára og hefur flesta fylgjendur á streymisveitunni Twitch, tæplega 22 milljónir. Hann er þekktur fyrir útsendingar þar sem hann spilar tölvuleiki, tekur á móti frægum gestum og skemmtir áhorfendum með gríni og uppátækjum. Laugardaginn 26. september fylgdu áhorfendur honum hins vegar um Ísland í margra klukkustunda útsendingu.
Íslandsferðin var sú fyrsta í nýrri þáttaröð hans, Exploring the Unexplored. Þar ætlar hann að ferðast út fyrir stórborgirnar og upplifa náttúru og staði sem hann hefur ekki heimsótt áður. Ísland var ofarlega á óskalistanum.
Bjóst við rólegri heimsókn
Dagurinn hófst í Hljómskálagarðinum, þar sem Cenat klæddist víkingabúningi og spreytti sig á spjótkasti, axarkasti og skylmingum. Hann vísaði óspart í tölvuleikina Elden Ring og Minecraft en sú reynsla dugði honum ekki til að hitta skotmarkið með öxinni í fyrstu tilraun. Þegar það tókst loks velti hann því fyrir sér í gríni hvort hann hefði nú unnið sér inn íslenskan ríkisborgararétt.
Á meðan safnaðist hópur aðdáenda í kringum hann. Cenat hafði búist við mun minni athygli og fór að efast um að einn öryggisvörður dygði. „Ég hélt í alvöru að þetta yrði mjög rólegt,“ sagði hann. Þegar fólk elti bílinn hans líkti hann hamaganginum við uppvakningamyndina World War Z.
Síðar, þegar hann fór af Hjartatorgi eftir matarsmakk, sagði hann að einhver hefði tekið hattinn af höfðinu á honum.
„Bestu pungar sem ég hef borðað á ævinni“
Á Hjartatorgi kynnti leikarinn Stefán Kári Ottósson hann fyrir íslenskum mat. Cenat hafði ekki borðað morgunmat og átti því eftir að byrja daginn á réttum á borð við hrútspunga og svið. Honum brá þegar Stefán útskýrði matseðilinn en lét sig hafa það að smakka.
Sviðasultan kom honum þægilega á óvart. Lifrarpylsan þótti honum þurr og hann stakk upp á að bæta við osti. Þegar röðin kom að hrútspungunum hló hann og lýsti yfir: „Þetta eru bestu pungar sem ég hef borðað á ævinni.“ Hann bætti þó við að þeir væru hvorki sérstaklega góðir né slæmir og reyndi árangurslaust að fá félaga sína til að smakka.

Hann smakkaði einnig tunguna og augað úr sviðakjamma. Skýringarnar á því hvernig annar matur á borðinu var útbúinn vöktu ekki síður athygli hans. Stefán sagði laxinn taðreyktan og rúgbrauðið bakað með jarðhita. Cenat fór yfir þetta fyrir áhorfendum sínum: Hann væri að borða hrútspunga, lax reyktan með kindaskít og brauð úr jörðinni. „Velkominn til Íslands, vinur minn,“ svaraði Stefán.
Hákarlinn féll hins vegar ekki í kramið. Cenat brá við lyktina og eftir að hafa smakkað var niðurstaðan skýr: „Þetta er það versta.“
Þríhnúkagígur fékk tíu af tíu
Frá Reykjavík lá leiðin í þyrlu að Þríhnúkagíg. Cenat dáðist að útsýninu á leiðinni og við gíginn varð hann sérstaklega hugsi yfir því hvar hann væri staddur. Hann rifjaði upp uppvaxtarár sín í Bronx í New York og þakkaði áhorfendum fyrir að gera honum kleift að ferðast til staða sem þessa.
„Þetta er líklega það fallegasta sem ég hef nokkurn tíma séð,“ sagði hann. Honum fannst útsendingin þó ekki ná að sýna áhorfendum allt sem blasti við honum. „Myndavélin nær þessu ekki almennilega.“
Næst beið hans ferð um 120 metra niður í gíginn, þar sem síðast gaus fyrir um 4.500 árum. Cenat viðurkenndi að hann væri hræddur þegar hann seig niður í opinni lyftunni og reyndi að forðast að horfa niður. Á botninum skoðaði hann litina í berginu og spurði leiðsögukonuna út í gos og jarðskjálfta.

Eftir hávaðann og mannþröngina í Reykjavík kom allt annars konar augnablik þegar leiðsögukonan bauðst til að syngja íslenskt vögguljóð í gígnum. Cenat lét stöðva tónlistina úr kvikmyndinni Interstellar sem hafði verið spiluð undir útsendinguna og hlustaði á sönginn. „Þetta hljómar svo fallega,“ sagði hann.
Eftir heimsóknina fékk hann kjötsúpu, hrósaði bæði matnum og gestrisninni og gaf upplifuninni af gígnum tíu af tíu mögulegum.

Reyndi að tala kindurnar til
Næst lá leiðin á sveitabæ þar sem Cenat fékk lánaðan fatnað og nýtt verkefni, að ná kind. Það reyndist meiri vinna en hann hafði reiknað með. Hann nálgaðist féð, hljóp á eftir því og reyndi jafnvel að tala kindurnar til.
Þegar féð hafði verið rekið inn í fjárhús tókst honum loks að ná einni kind og leiða hana út. Hann fagnaði móður og másandi og lýsti þessu sem alvöru líkamsæfingu. Þegar bóndinn bauð honum að koma aftur og hjálpa til við að taka féð inn fyrir veturinn sagðist hann bara bíða eftir símtali.
Síðar viðurkenndi hann þó að búskapur væri sennilega ekki fyrir hann. „Ég held að ég gæti aldrei verið með sveitabæ,“ sagði hann. Á bænum fékk hann líka húfu sem hann mátti taka með sér og bætti þannig upp hattamissinn fyrr um daginn.
Saknaði fólksins í Reykjavík
Þegar ferðin hélt áfram yfir fjöll og dali átti Cenat enn erfitt með að trúa því sem hann sá. Hann líkti breytingunum í landslaginu við ólík svæði í Minecraft og velti fyrir sér hvernig svo ólíkt umhverfi gæti verið að finna á svo litlu svæði. „Þetta lítur út eins og önnur pláneta. Hvernig getur þetta verið jörðin?“ spurði hann og hvatti áhorfendur jafnframt til að ganga vel um náttúruna.

Þrátt fyrir hamaganginn fyrr um daginn sagðist hann þá þegar sakna fólksins í Reykjavík. „Ég sakna borgarinnar. Þau voru svo glöð og svo góð við mig,“ sagði hann.
Eftir aksturinn beið máltíð með íslensku lambakjöti og kartöflum áður en þyrlan flutti hópinn á jökul. Þar kvaddi hann áhorfendur, ánægður með daginn.
„Ísland var geggjað, allt frá borginni og hingað.“