Lagið Framávið er samið af Guðjóni sjálfum ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland.
„Þetta lag talar til fólks sem er á rangri braut og minnir það á að það er ekki of seint að mynda nýja stefnu og líta fram á við. Leiðin til baka er aldrei lokuð og þú getur alltaf fundið nýtt sjónarhorn á lífið með því að fylgja hjartanu.“
Hér má hlusta á lagið:
Guðjón er átján ára gamall og skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna síðastliðinn apríl.
„Þetta er í þriðja skipti sem ég er að mæta á hinsegin daga og ég er í sjokki að ég sé að syngja hinsegin lagið í ár. Þetta er ólýsanleg tilfinning. Við lögðum blóð, svita og tár í þetta og ég er svo ótrúlega þakklátur hvað við sem hinsegin fólk erum frábær í að taka fólki eins og það er, þannig á þetta að vera. Ég sjálfur er svo stoltur að tilheyra þessu samfélagi.“
Guðjón tók lagið á opnunarhátíð Hinsegin daga og á nokkrum öðrum viðburðum í gær. Þegar blaðamaður ræddi við hann var hann á leið í tökur á RÚV fyrir þáttinn Undir regnboganum.
„Þetta er svo skemmtilegt. Svo eftir Gleðigönguna er ég að fara að syngja með Stjórninni í Iðnó á laugardagskvöld klukkan ellefu, það er klikkað,“ segir Guðjón fullur tilhlökkunar og bætir við:
„Allt ferlið, frá því að taka upp í stúdíóinu yfir í að flytja lagið, þetta er búið að vera svo gefandi, gleðjandi og æðislegt. Það er sannarlega ekki sjálfgefið að fá svona tækifæri en þetta hefur sannarlega lyft mér upp í tónlistinni.“