Gjaldtaka á bílastæðum við Egilshöll hefur verið til skoðunar í langan tíma. Fasteignafélagið Heimar, sem á Egilshöll, fundar nú með rekstraraðilum innan Egilshallar þar sem farið er yfir fyrirkomulagið.
Greint var frá því um helgina að fyrirhuguð gjaldtaka hefjist í sumar. Áfram verði hægt að leggja án endurgjalds í stæði næst húsinu, en þó aðeins í 15 mínútur. Í önnur stæði verður hægt að leggja endurgjaldslaust í þrjár klukkustundir.
Þá sé markmið Heima að tryggja að gestir og viðskiptavinir eigi alltaf auðvelt með að finna laust stæði nálægt húsinu sem hefur á undanförnum misserum reynst mörgum erfitt á álagstímum. Það megi m.a. rekja til þess að stæði hafi verið nýtt til langtímageymslu á bílum, ferðavögnum og fleiru án leyfis.
Finna fyrir fjölgun bíla á höfuðborgarsvæðinu
„Þetta er búið að vera til skoðunar lengi hjá okkur,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, í samtali við mbl.is.
Hann segir ákveðna þróun hafa lengi verið að eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu sem snúi að fjölgun bíla.
„Við vorum að taka þetta saman og það er talað um að það fjölgi um 70 bíla á viku á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú horfir á það yfir lengra tímabil þá eru þetta einhverjir tugir þúsunda bíla sem hafa bæst við á göturnar hérna frá því að Egilshöll var opnuð og við finnum það að fólk er að nota stæði, hvort sem það er við Egilshöll eða önnur svona stór stæði sem eru vel aðgengileg - það er verið að nota þetta sem alls konar geymslur,“ segir Baldur.
„Við viljum bara að stæðin séu fyrir viðskiptavini okkar sem eru að sækja þjónustu í Egilshöll og þess vegna höfum við þrjá tíma ókeypis. Það ætti að duga langflestum sem eru að koma í Egilshöllina.“
„Flestir skilja þetta“
Á meðal þeirra fyrirtækja sem reka starfsemi í Egilshöll má nefna Sambíóin, Keiluhöllina og World Class.
Aðspurður segir Baldur Heima hafa undanfarna viku verið að funda með forsvarsmönnum fyrirtækja í Egilshöll og að á þeim fundum hafi almennt verið tekið jákvætt í hina fyrirhuguðu gjaldtöku.
„Flestir skilja þetta og taka bara jákvætt í þetta og vita alveg að þeirra viðskiptavinir þurfa oft að labba langan veg af því að stæðin sem eru næst húsinu eru oftar en ekki full. En auðvitað er starfsemin í húsinu mismunandi og við erum í samtali við leigutakana.“
„Við viljum bara flýta okkur hægt“
Spurður um hvort hægt sé að veita upplýsingar um nánari tímaramma, þ.e. hvenær gjaldtakan hefjist nákvæmlega, segir Baldur að unnið sé nú að framkvæmd gjaldtökunnar, en greint hefur verið frá því að kerfið muni byggja á sjálfvirkri númeraplötugreiningu.
Segir Baldur að setja þurfi upp tæknikerfin og prófa þau og að það verði gert einhvern tímann í sumar.
„Við viljum bara flýta okkur hægt og gera þetta vel og læra á þetta allt þannig að þegar þetta verður tekið í gang þá verði sem minnstir hnökrar í þessu.“


