Bókunarkerfi Herjólfs liggur enn niðri með tilheyrandi vandræðum. Framkvæmdastjóri Herjólfs bindur vonir við að truflanir á siglingum ferjunnar taki fljótlega enda.
Á fimmtudag kviknaði í gagnaveri í Hollandi sem hýsir bókunarkerfi Herjólfs. Síðan þá hefur kerfið legið niðri og hafa starfsmenn þurft að færa allar bókanir inn handvirkt. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir það tímafrekt verkefni sem skerði starfsemina. Um þessar mundir sé einungis hægt að bóka fáar ferðir í einu.
„Þetta setur mikið strik í reikninginn og er mjög alvarlegt mál. Við erum búin að vera í sambandi við okkar fólk úti í Finnlandi sem rekur fyrir okkur bókunarvélina og það er allt á fullu við það að koma þessu í gagnið aftur. Við vitum ekki nákvæmlega hvað gerist en vonandi verður það innan ekki margra daga,“ segir Ólafur.
Siglingar Vestmannaeyjaferjunnar hafa verið nokkrum vandkvæðum bundnar það sem af er ári. Lítið hefur verið siglt til Landeyjahafnar, bilun varð í öðrum rafmótor Herjólfs í síðasta mánuði og nú liggur bókunarvélin niðri. Ólafur vonast til þess að starfsemin komist í eðlilegt horf eins fljótt og auðið er.
„Þetta er alveg ótrúleg ólukka sem við erum að takast á við núna. En ég hef svo sem sagt það áður en segi það nú aftur, vonandi er nú botni náð og við vonumst til þess að þetta komist allt saman, bæði bókunarvélin og höfnin í lag á allra næstu dögum,“ segir Ólafur.
Þá getum við lifað nokkuð eðlilegu lífi og vonað það að fólkið fari að flykkjast til okkar og að Eyjamenn geti farið að ferðast án þess að þurfa að bóka langt fram í tímann.“