Verjandi annars tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða segir það blasa við að umbjóðandi sinn sækist eftir skaðabótum frá ríkinu vegna langrar málsmeðferðar. Hann segir það fagnaðarefni að niðurstöðu Landsréttar hafi ekki verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Í dag varð ljóst að ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar sem féll fyrr í sumar í hryðjuverkamálinu svokallaða.
Með dómi Landsréttar voru sakborningarnir tveir, Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson, sakfelldir fyrir vopnalagabrot. Sindri Snær var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánuði. Það eru sömu dómar og þeir fengu í Landsrétti í mars 2025.
Sveinn Andri Sveinsson er verjandi Sindra Snæs. Hann segir það fagnaðarefni að málinu sé formlega lokið.
„Við verjendurnir höfum nú alltaf haft fullvissu um það að þessu máli hefði átt að vera lokið fyrir ansi löngu síðan. En það var einhver þrjóska hjá ákæruvaldinu að halda áfram sem virtist aðallega stjórnast af því að réttlæta mistök sem voru gerð í upphafi málsins,“ segir Sveinn Andri.
„Það er bara eins og það er en nú eru næstu skref fyrir ákærða í málinu að huga að einkaréttarkröfum á hendur ríkinu, skaðabótakröfum út af þessu máli sem er búið að valda þeim gríðarlegu tjóni og miska.“
Ekki liggur fyrir hversu háar kröfur sakborninganna verða né hvernig þær verða útfærðar, segir Sveinn Andri.
„En mér finnst það liggja í augum uppi að bæði Sindri og Ísidór eiga heilmiklar skaðabótakröfur frá ríkinu fyrir þetta mál.“
Sveinn Andri segir líf sakborninganna tveggja hafa verið erfitt frá því málið kom upp fyrir tæpum fjórum árum, í september 2022.
„Þeir hafa hvergi getað fengið vinnu og þeirra ævi fór bara í pásu allan þennan tíma. Þannig að við getum rétt ímyndað okkur hvaða áhrif svona hefur. Að sjálfsögðu blasir það við að þeir hafa orðið fyrir miklu tjóni.“