Þegar nei-ið náði yfirhöndinni
Halldór Benjamín Þorbergsson fór af árshlutafundi Heima yfir á sviðið á Austurvelli, þar sem hann gat fagnað viðsnúningi unga fólksins.
Eftir að Öxar við ána hafði hljómað yfir blaktandi fánum á Austurvelli steig Halldór Benjamín Þorbergsson á svið. Halldór var nýkominn af árshlutafundi fasteignafélagsins Heima hf, þar sem hann er forstjóri. Hann hafði klukkustund áður kynnt hluthöfum að hagnaður fyrri helming ársins hefði verið 4,6 milljarðar króna. Þeir náðu að hækka leigutekjurnar um rúmlega þrjú prósent umfram verðbólguna og hagnaðinn um 3,5 milljarða.
Um morguninn greindi Hagstofan frá því að verðlagsvísitalan hækkaði um 0,2 prósent, aðallega vegna hækkunar á „reiknaðri húsaleigu“.
Þá varð endanlega ljóst að forsendurbrestur var í kjarasamningnum, sem Halldór Benjamín hafði samið um fyrir hönd atvinnurekenda í sínu fyrra starfi sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Síðar fór Halldór úr jakkafötunum og birtist í gallaefni á fundum Áfram Ísland, samtökin gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið sem héldu útifundinn á Austurvelli.
„Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir,“ sagði Halldór Benjamín í hljóðnemann á …