Tíu grísir drápust þegar brotist var inn í svínabú Stjörnugríss og dýrum sleppt út. Framkvæmdastjóri segir aðkomuna hafa verið hræðilega þegar starfsmenn fyrirtækisins komu að svínabúinu snemma á mánudagsmorgun.
„Dýrin voru bara úti um allt. Smágrísir og gyltur, öllu blandað saman og svo kannski það sem er kannski þungbærast í þessu, bara dauðir grísir og fósturlát og ýmislegt annað sem blasti við,“ segir Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss.
Dýrin voru í goti og segir Geir að bæði grísir og gyltur séu mjög viðkvæm á þeim tíma, sérstaklega þar sem brotist hafi verið inn að nóttu til þegar dýrin voru í hvíld.
Töluvert eignatjón hafi orðið en það eigi eftir að koma betur í ljós á næstu dögum og vikum. Geir segir að dýrin séu honum þó efst í huga.
Í tilkynningu frá Stjörnugrís segir að umfang og framkvæmd verknaðarins bendi til þess að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Af verksummerkjum megi ráða að brotið hafi verið framið undir yfirskyni dýravelferðar, þrátt fyrir að afleiðingar gjörðanna hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum.
Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og var henni afhent bréf, skrifað á íslensku, sem skilið var eftir á vettvangi. Rannsókn er á frumstigi.
„En innihald bréfsins og þessi aðgerð fer ekki saman,“ segir Geir. „Þarna gengu menn bara of langt, það er hægt að mótmæla og hafa skoðanir á búrekstri og þess háttar en að það valdi dýrunum þjáningu og jafnvel dauða er ekki forsvaranlegt.“
Málið hefur einnig verið tilkynnt til Matvælastofnunar.
Telur ólíklegt að íslensk samtök hafi brotist inn
Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, segir ólíklegt að íslensk dýraverndarsamtök standi að baki innbrotinu.
„Af því að þessi nálgun er bara mjög slæm fyrir dýrin og líka bara fyrir málstað þeirra. Við fordæmum svona meðferð á dýrum og vinnubrögð, að brjótast inn og hleypa dýrum út,“ segir hún. Vinnubrögð sem þessi séu ekki líkleg til að ná árangri.
„Meðferð á svínum á svínabúum er kerfisbundin og það að opna fyrir einhverjum einum hópi dýra þarna mun ekki leysa þann vanda. Þetta eru auðvitað mjög erfiðar aðstæður fyrir dýrin þarna inni en þetta er ekki að fara að leysa vandann,“ segir Linda Karen.