Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir meintar mútugreiðslur útgerðarfyrirtækisins Samherja til namibískra ráðamanna segja meira um aðstæður í Namibíu en á Íslandi. Blaðamaður Berlingske ræddi við Daða í tengslum við umfjöllun um Samherja og íslenska listamanninn Odee Friðriksson.
Meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra ráðamanna eru taldar nema frá 1,5 milljarði til 3 milljarða.
„Þetta er hræðilegt mál,“ segir Daði Már við blaðamann Berlingske. „En það er spilling í Namibíu – ekki á Íslandi.“
Tilefni umfjöllunar Berlingske er vefsíða sem Odee setti í loftið í vikunni sem lítur í fljótu bragði út fyrir að tilheyra Öldu Seafood, sem hefur haldið utan um hluta af erlendri starfsemi Samherja. Vefsíðan er hins vegar fölsun úr smiðju Odees.
Afsökunarbeiðni blasir við þegar vefurinn er opnaður og í fréttatilkynningu dagsettri 22. apríl virðist sem Alda Seafood sé að biðjast afsökunar á tengslum við Samherja. Vefurinn er út smiðju Odee's og er nokkurs konar endurtekning á fyrra uppátæki hans frá 2023.
Odee var dæmdur sekur í Bretlandi fyrir brot á vörumerkjamerkjaréttindum. Hann segir í samtali við Berlingske að hann hafi ákveðið að líta fram hjá því. Hann setti nýjan falsaðan vef í loftið í kjölfar umfjöllunar Berlingske um íslenskan sjávarútveg.
Það sé gert í þágu tjáningarfrelsis og til að varpa ljósi á óréttlæti í garð Namibíumanna og ábyrgð fyrirtækja.
Ítök hagsmunaafla nái inn í þingsal
Blaðamaður Berlingske ræddi við 19 heimildarmenn í fyrri umfjölluninni þar sem íslenskur sjávarútvegur var sagður vera byggður á ótta, græðgi og pólitískum áhrifum og honum líkt við fámennissstjórn, eða ólígarkí.
Daði Már var einn viðmælenda Berlingske og var haft eftir honum að öflugir þrýstihópar stæðu í vegi fyrir breytingun í íslenskum sjávarútvegi.
Í viðtali við RÚV í kjölfarið sagði hann greinina hafa verið einhliða og að deilan um kerfið sé sprottin úr því hve mikill árangur hefði náðst í verðmætasköpun úr fiskveiðiauðlindinni.
Hann sagði ekki rétt að kalla Ísland ólígarkí en að sterk varðstaða um eiginhagsmuni, sem nái alla leið inn í þingsal, þýði að erfitt sé að ráðast í breytingar þrátt fyrir þingmeirihluta.