Líklegt er að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, að mati formanns Flugvirkjafélags Íslands. Hann telur stjórnendur flugfélagsins vera með loforð uppi í erminni um að deilan verði leyst.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, var gestur í Vikulokunum á Rás 1 og 2 í morgun. Að öllu óbreyttu og náist samningar ekki ætla flugvirkjar í ótímabundið verkfall aðfararnótt 23. september, eftir fjóra daga.
Óskar segir Icelandair ekki hafa komið með neitt nýtt að borðinu á fundi þeirra hjá ríkissáttasemjara í gær. „Það var alveg núll áhugi fyrir að ná samkomulagi.“
Ríkissáttasemjari hafi velt upp leiðum til að leysa deiluna en þær hafi ekki hugnast flugvirkjum. Flugvirkjar áttu frumkvæði að fundinum í gær en annar fundur hefur ekki verið boðaður.
Óskar segir að Icelandair hafi getað sagt sér að þessi staða myndi koma upp þegar samið var við flugvirkja 2020.
„Fimm ára samningur er lengsti samningur sem hefur verið gerður í sögu flugvirkjafélagsins og þegar launaskrið hefur orðið með þessum hætti sem það hefur verið á þessum árum þá drögumst við aftur úr. Fyrirtækið gat alveg sagt sér það að þessi staða kæmi upp, það var alveg morgunljóst.“
Alþingi setti bann á verkfall flugvirkja 2010 en slíkar aðferðir hafa ekki verið notaðar undanfarin ár. Óskar telur líklegt að stjórnvöld grípi inn í kjaradeiluna.
„Mér finnst þetta hljóma allt í þá átt þegar fyrirtækið er búið að gefa það út í fjölmiðlum að ef það náist ekki að afstýra verkfalli þá verði allt flug fellt niður 23. og 24. september og það er náttúrulega talað undir rós að þá muni það hefjast á fullu 25. september. Það segir manni eitt að þeir hljóta að vera með eitthvað loforð uppi í erminni með að þetta verði leyst fyrir þá.“
Þannig að þú telur líklegt að stjórnvöld grípi inn í?
„Já, ég les bara í þetta eins og almenningur.“