Íris Dögg Guðjónsdóttir, formaður fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga, telur ekki að útbreidd notkun sterkra geðlyfja tengist undirmönnun á hjúkrunarheimilum.
Fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum í Kveik í gærkvöld. Þar kom fram að tæp 40 prósent íbúa hefðu fengið slík lyf í fyrra, margir án greiningar.
Íris segir að umræða um notkun lyfjanna sé bæði þörf og gagnleg. Henni þótti umfjöllun Kveiks þó nokkuð einhliða.
Gott tímabundið úrræði
Íris Dögg segir að margt fólk með heilabilun geti fengið ofskynjanir og ranghugmyndir. Þá sé gott að geta gripið til lyfjameðferðar til að tryggja að fólki líði sem best.
Hún segir að slíkt sé þó alltaf gert af fagfólki og að vel ígrunduðu máli.
„Þetta er rosa gott tímabundið úrræði og þá þarf alltaf að íhuga og skoða til baka og endurmeta lyfjagjöf – en þetta er gott að grípa í þegar þarf,“ segir hún.
Formaður Landssambands eldri borgara sagði fyrr í dag að hann teldi aukna notkun sterkra geðlyfja tengjast undirmönnun á hjúkrunarheimilum. Íris telur svo ekki vera.
„Ég vil ekki ganga svo langt að segja það. Ég vil halda því fram að þetta sé alltaf með þörf einstaklingsins í huga og þeirra vellíðan. Ég held, og ég vona, að það sé ekki verið að grípa til lyfja til þess að koma til móts við undirmönnun eða fáliðun. Það er ekki mín upplifun, nei.“