Áætlað er að hefja viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði (vegnúmer 1) þriðjudaginn 26. maí og að hún standi yfir til 16. júní.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að unnið verði alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin.
Brúin verður lokuð yfir daginn en opnað verður fyrir umferð fjórum sinnum á dag, þrisvar í hálftíma í senn og einu sinni í klukkutíma.
Þá verður brúin opin eftir að vinnu lýkur að kvöldi og þar til vinna hefst á ný að morgni. Hún verður einnig opin um helgar.
Til stendur að mála brúna á þessu tímabili ef veður leyfir. Sá fyrirvari er gerður að ef ekki viðrar til málningarvinnu frestist verkefnið lengra inn í sumarið.
Vegagerðin hefur fengið fyrirspurnir um það hvers vegna ekki sé málað að nóttu til. Það er ekki mögulegt vegna þess að þá er loftraki of mikill.
Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara ef aðstæður krefjast.
Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verða sett upp við brúna.
Vegagerðin hvetur vegfarendur til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu, segir á heimasíðunni.