Svört skýrsla um aðkomu ríkislögreglustjóra að varnargörðunum - Verkið reyndist embættinu ofviða - DV

Svört skýrsla um aðkomu ríkislögreglustjóra að varnargörðunum - Verkið reyndist embættinu ofviða - DV

Ríkisendurskoðun hefur birt svarta skýrslu um varnargarðana á Reykjanesskaga, en þar fær aðkoma embættis ríkislögreglustjóra algjöra falleinkunn. Embættið hafi skort nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með þetta umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og margt bendi til þess að verkefnið hafi reynst embættinu ofviða.

Tekur Ríkisendurskoðun í skýrslu sinni undir með fjölmörgum viðmælendum um að varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt og að verkfræðingar, verktakar, Vegagerðin og aðrir sem komu að hönnun varnargarðanna og verklegum framkvæmdum hafi unnið þrekvirki við oft krefjandi aðstæður.

Hins vegar sé margt sem hefði betur mátt fara. Með lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga var dómsmálaráðherra heimilað að taka ákvarðanir um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna að fenginni tillögu frá ríkislögreglustjóra. Ákvarðanir þessar áttu að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir og aðrir almannahagsmunir yrðu fyrir tjóni vegna jarðhræringanna. Frá nóvember 2023 og fram til maí 2025 gerði ríkislögreglustjóri 11 tillögur um aðgerðir. Tillögurnar byggðu á minnisblöðum hönnunar- og framkvæmdateymisins í svokölluðum innviðahóp. Þetta hönnunar- og framkvæmdateymi var skipað verkfræðistofunum Verkís og Eflu og höfðu þær umsjón með hraunflæðihermum, hönnun varnargarða og uppbyggingu þeirra.

Ríkisendurskoðun gerir einkum athugasemdir við aðkomu ríkislögreglustjóra sem, eins og áður segir, hafði ekki burði til að fara með verkefnið. Innviðahópurinn var ekki skipaður með formlegum hætti og hafði ekki skýrt skilgreint hlutverk eða markmið. Engin tímamörk voru sett um starfsemina og engir samningar lágu fyrir við Eflu eða Verkís. Ríkislögreglustjóri leitaði ekki til annarra verkfræðistofa.

Vegagerðin með en samt ekki

Ríkislögreglustjóri ákvað að bjóða Vegagerðinni að taka þátt í innviðahópnum sem Ríkisendurskoðun telur mjög skynsama ákvörðun. Hins vegar hafi enginn fulltrúi Vegagerðarinnar fengið pláss í innviðahópnum. Ekki hafi verið farið eftir þeirri verka- og ábyrgðarskiptingu sem var samið við Vegagerðina um. Vegagerðin átti að greiða allan framkvæmdakostnað verksins en gerði það ekki, og Vegagerðin átti að sjá um alla samninga við verkfræðistofur, en gerði það ekki. Ekki var það Vegagerðinni að kenna heldur hafði ríkislögreglustjóri tekið að sér að greiða Verkís fyrir verkefnisstjórn varnargarðanna, hönnunarvinnu og hraunhermun.

Skilgreina hefði þurft verkskiptingu með skýrari hætti. Vissulega hafi jarðhræringarnar gert að verkum að stundum þurfti að sinna mörgum krefjandi verkefnum á skömmum tíma, en vinna hópsins sem og lögin sem vinnan byggði á voru í gildi allt til janúar á þessu ári og hefði ríkislögreglustjóri því haft nægan tíma til að bæta verkskiptinguna.

Líklegt þyki að fleiri eldstöðvakerfi á Reykjanesskaga bæri á sér á næstu árum og áratugum. Ef svo gerist þurfi að vera skýrt hver fari með hvaða hlutverk. Skynsamlegt væri að leita til Vegagerðarinnar enda búi hún yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af þessari stærðargráðu. Engin slík sérþekking sé fyrir hendi hjá ríkislögreglustjóra.

Áður en Vegagerðin tók við hlutverki verkkaupa hafði Verkís stýrt vali á verktökum fyrir hönd almannavarnadeildar. Vegagerðin þurfti því í desember 2023 að semja við verktaka sem þegar voru komnir að verkinu. Engu að síður hafi Vegagerðinni tekist að ná fram lækkun fyrirliggjandi taxta og þar af leiðandi hagstæðari samningum fyrir ríkið. Á þeim tímapunkti höfðu fyrstu reikningar verktaka hvorki verið samþykktir né greiddir.

Hönnunar- og framkvæmdateymi innviðahópsins gerði mat á nauðsyn viðkomandi framkvæmda, tæknilegar lýsingar mannvirkja, fyrirhugaðar staðsetningar og kostnaðaráætlanir. Þessar tillögur bar ríkislögreglustjóri aldrei undir óháðan aðila og óskaði aldrei eftir sundurliðun á kostnaði. Ríkisendurskoðun telur að betra hefði verið að ríkislögreglustjóri hefði leitað til óháðra ráðgjafa til að tryggja betur hagsmuni ríkissjóðs. Hönnunar- og framkvæmdateymið fékk engin fyrirmæli frá ríkislögreglustjóra um hvernig vali á verktökum skyldi háttað og lagði ekki fram nokkur kostnaðarviðmið. Embættið gerði svo engar ráðstafanir til að afstýra mögulegum hagsmunaárekstrum sem upp gætu komið í ljósi þess að sami aðili og sá um hönnun og undirbúning varnagarðanna hefði einnig umsjón með framkvæmdunum.

12 milljarðar

Áætlaður heildarkostnaður varnargarðanna nam um 12 milljörðum króna í árslok 2025. Þar af var kostnaður vegna varnargarða við Svartsengi 6,9 milljarðar. Vegagerðin sendi ríkislögreglustjóra ábendingu í maí 2025 um að almannavarnadeild þyrfti að kanna hvort embættið hefði greitt kostnað vegna varnargarða sem ekki hefði verið bókaður á rétt númer. Engin svör höfðu borist í mars 2026. Í sumum tilfellum reyndist áætlaður heildarkostnaður hvers áfanga við framkvæmdirnar hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir og í öðrum lægri. Kostnaður vegna hvers og eins áfanga við varnargarðana var ekki bókfærður sérstaklega. Ríkisendurskoðun tekur fram að umtalsverður kostnaður hafi fallið á ríkissjóð vegna framkvæmdanna við varnargarðinn án þess að fyrir liggi hvaða þýðingu mikilvægir innviðir hafi í samhengi almannavarna og hvaða innviði skuli verja. Verði farið í frekari uppbyggingu varnargarða eða aðrar stórtækar framkvæmdir á Reykjanesskaga sé mikilvægt að skilgreina nánar hvaða innviði skuli vernda.

Ríkisendurskoðun beinir því til forsætis- og dómsmálaráðuneytis að skýra verka- og ábyrgðarskiptingu, finna ríkisaðila með reynslu og burði til stórframkvæmda til að sjá um svona verkefni og skilgreina hvaða innviðir teljast mikilvægir.

Til fjármála- og efnahagsráðuneytis beinir Ríkisendurskoðun þeim ábendingum að tryggja fjármögnum framkvæmda vegna náttúruvár í framtíðinni og að tryggja fullnægjandi heimtur forvarnagjalds.

 

#ríkislögreglustjóra #varnargörðunum #embættinu #reyndist #skýrsla


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/22/svort-skyrsla-um-adkomu-rikislogreglustjora-ad-varnargordunum-verkid-reyndist-embaettinu-ofvida/

📰 Aðrar fréttir

King's 'high stakes' visit with Trump will be toughest test yet of his reign
📅 24.04.2026 23:36:58 👁️ 0

King's 'high stakes' visit with Trump will be toughest test yet of his reign

#toughest#stakes#visit#trump#reign
Everest flood warning neglected for years, Nepal officials tell BBC
📅 24.04.2026 23:28:09 👁️ 0

Everest flood warning neglected for years, Nepal officials tell BBC

#neglected#officials#everest#warning#flood
'Killing in prison is not difficult' - the rise in attacks behind bars
📅 24.04.2026 23:00:03 👁️ 0

'Killing in prison is not difficult' - the rise in attacks behind bars

#difficult#killing#attacks#prison#behind
Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn
📅 24.04.2026 22:35:28 👁️ 0

Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn

#reynslulausn#breivik#skiptið#sækir#eitt
Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks
📅 24.04.2026 22:02:50 👁️ 0

Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks

#pakistan#witkoff#kushner#envoys#trump
I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series
📅 24.04.2026 21:36:57 👁️ 0

I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series

#celebrity#eventful#crowns#jungle#legend
Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir
📅 24.04.2026 21:32:07 👁️ 0

Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir

#krabbamein#netanjahú#greindist#vísir
„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“
📅 24.04.2026 21:20:44 👁️ 0

„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“

#framkvæma#íslensk#aðferð#spyrja#þetta
Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir
📅 24.04.2026 21:15:33 👁️ 0

Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir

#sakborninga#fjölgar#húsleit#ráðist#vísir
Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar
📅 24.04.2026 20:30:17 👁️ 0

Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar

#stjórnarandstaðan#meirihlutann#blekkingar#sakaði
Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV
📅 24.04.2026 20:30:11 👁️ 0

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV

#tryggingafélag#íslendingar#læknastofu#milljónir#sviknir
Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi
📅 24.04.2026 20:25:19 👁️ 0

Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi

#laugarvatni#selfossi#nemenda#kórsöng#mikill
Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks
📅 24.04.2026 20:01:03 👁️ 0

Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks

#lögreglumál#starfsfólks#áreitni#vegna#tólf
Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp
📅 24.04.2026 20:00:35 👁️ 0

Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp

#stefnumótaöpp#aðalheiði#myndband#ghosting#ræðir
„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir
📅 24.04.2026 19:56:58 👁️ 0

„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir

#lykilstöðu#viðreisn#algjörri#vísir
Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri
📅 24.04.2026 19:43:20 👁️ 0

Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri

#hugfangnir#leiðangri#svíar#elgum
Oddvitaumræður í Hveragerði
📅 24.04.2026 19:37:58 👁️ 0

Oddvitaumræður í Hveragerði

#oddvitaumræður#hveragerði
Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir
📅 24.04.2026 19:17:49 👁️ 0

Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir

#utanríkisráðherra#sendimenn#morgun#trump#írans
70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje
📅 24.04.2026 19:11:00 👁️ 0

70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje

#drowning#incident#revived#after#beach
Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV
📅 24.04.2026 18:56:56 👁️ 0

Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV

#réttmætur#eigandi#segist#hafður#rangri
The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag
📅 24.04.2026 18:55:00 👁️ 0

The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag

#unexpected#upgrading#benefits#your#golf
Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni
📅 24.04.2026 18:49:07 👁️ 0

Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni

#sjálfstæðisflokkur#samfylkingu#borginni#tekur#fram
Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu
📅 24.04.2026 18:31:50 👁️ 0

Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu

#tilfinningaþrungna#yfirlýsingu#reiner#sendir#sonur
Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir
📅 24.04.2026 18:31:45 👁️ 0

Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir

#turnanna#breikkar#bilið#milli#vísir
Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske
📅 24.04.2026 18:31:06 👁️ 0

Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske

#hluthafaspjallið#berlingske#forstjóra#þorstein#viðtal
Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir
📅 24.04.2026 18:30:09 👁️ 0

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir

#vesturlönd#fyrirætlað#opinskátt#rússland#stríð
Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker
📅 24.04.2026 18:17:05 👁️ 0

Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker

#newsreader#withdraws#channel#against#claims
Oddvitaumræður í Borgarbyggð
📅 24.04.2026 18:10:03 👁️ 0

Oddvitaumræður í Borgarbyggð

#oddvitaumræður#borgarbyggð
Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir
📅 24.04.2026 18:05:44 👁️ 0

Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir

#heimahúsum#vendingar#tónleikar#borginni#vísir
Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead
📅 24.04.2026 18:02:54 👁️ 0

Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead

#director#parents#reiner#bares#found
AENA take action to ease passport control queues for British arrivals
📅 24.04.2026 17:51:00 👁️ 0

AENA take action to ease passport control queues for British arrivals

#passport#arrivals#control#british#action
Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður
📅 24.04.2026 17:48:23 👁️ 0

Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður

#sakamálarannsókn#seðlabankastjóra#hendur#felld#niður
Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri
📅 24.04.2026 17:39:00 👁️ 0

Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri

#evrópusambandið#viðskiptastjóri#mandelsons#rannsakar#meint
Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV
📅 24.04.2026 17:30:53 👁️ 0

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV

#fjárhagsaðstoð#útlendingar#reykjavík#hverjum#þremur
Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir
📅 24.04.2026 17:28:01 👁️ 0

Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir

#reykjanesbraut#árekstur#vísir#fimm#bíla
Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV
📅 24.04.2026 17:01:55 👁️ 0

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV

#taumunum#margrét#tekur#legal#esja
Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#árekstur#fimm#bíla
Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#nokkurra#árekstur#bíla
Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin
📅 24.04.2026 16:57:35 👁️ 0

Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin

#undanskotin#óligarkinn#kristján#ráðgjöf#nútíma
Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir
📅 24.04.2026 16:55:31 👁️ 1

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir

#listaverkið#náttúruna#svæðinu#öryggi#vernda
Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans
📅 24.04.2026 16:47:29 👁️ 0

Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans

#utanríkisráðherra#bandaríkjanna#samningamenn#helstu#fundar
Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar
📅 24.04.2026 16:47:16 👁️ 0

Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar

#lofthelginnar#orrustuþotur#rússneskum#afskipti#herþotum
Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV
📅 24.04.2026 16:30:53 👁️ 0

Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV

#samninga#felast#dagur#segir#hættu
Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin
📅 24.04.2026 16:20:33 👁️ 0

Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin

#samkomulags#bandaríkin#sögulegt#tækifæri#hegseth
Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap
📅 24.04.2026 16:20:10 👁️ 1

Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap

#investigate#palestinian#officers#skullcap#israeli
Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office
📅 24.04.2026 16:18:19 👁️ 1

Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office

#investigation#mandelson#formal#office#under
Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir
📅 24.04.2026 16:13:48 👁️ 0

Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir

#bensínstöð#sinueldur#kviknaði#vísir
Horfðu til himins
📅 24.04.2026 16:10:00 👁️ 0

Horfðu til himins

#horfðu#himins
Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða
📅 24.04.2026 16:08:00 👁️ 0

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

#fyrirboða#musical#snorra#school#segir
Sinueldur við N1 í Fossvogi
📅 24.04.2026 15:56:06 👁️ 0

Sinueldur við N1 í Fossvogi

#sinueldur#fossvogi