Ríflega hundrað milljóna munur er á tjónamati Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga vegna uppgjörs á kostnaði leigusamninga fyrir húsnæði sem hýsti umsækjendur um alþjóðlega vernd. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir ekki óvænt að kostnaður hafi hlotist af en kröfur sveitarfélaganna sé afar háar.
Vinnumálastofnun var með samninga um húsnæðisþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd við þrjú sveitarfélög: Reykjavík, Hafnarfjörð og Reykjanesbæ.
Samningarnir eru ekki í gildi lengur og á stofnunin nú í viðræðum við sveitarfélögin þar sem greitt er úr hver beri ábyrgð á kostnaði vegna ástands þjónustuhúsnæðisins. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir breyttar forsendur vera ástæðu þess að samningunum var sagt upp.
„Tilurð þessa er fyrst og fremst sú að það var svo gríðarlegur fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd hérna á árinu 2023 og þá náðum við samningum við þessi þrjú sveitarfélög um að aðstoða okkur með að þjónusta þetta fólk,“ segir Unnur.
„Þetta voru 2.800 manns í kerfinu en eru núna um 665 manns. Þá annar Vinnumálastofnun þeirri þjónustu mjög vel og auðveldlega þannig að nú er þetta bara allt á okkar hendi.“
Upp hefur komið ágreiningur í nokkrum tilvikum á milli Vinnumálastofnunar og sveitarfélaganna um hver eigi að bera ábyrgð og kostnað vegna ástands húsnæðis sem nýtt var í þessum tilgangi þegar þeim var skilað.
Samanlagt hljóða kröfurnar upp á rúmlega 400 milljónir
Mikill munur er á mati Vinnumálastofnunar á tjóni húsnæðisins og mati sveitarfélaganna. Til að mynda áætlaði Vinnumálastofnun að tjón á eignum sem leigðar voru í Hafnarfjarðabæ á meðan þjónustunni stóð næmi tæplega 24 milljónum króna.
Hins vegar hafa eigendur húsnæðisins krafið bæjarfélagið um rúmlega 190 milljónir króna og fer bærinn fram á að Vinnumálastofnun beri allan þann kostnað.
Búið er að ganga frá samkomulagi hluta þeirra eininga sem Reykjavíkurborg var með á leigu og hefur Vinnumálastofnun samþykkt að greiða rúmar 36 milljónir vegna tjónsins. Mat borgarinnar á þeim húsnæðiseiningum sem eftir standa nemur rúmum 115 milljónum króna en mat Vinnumálastofnunar er 32 milljónir.
Vinnumálastofnun hefur komist að samkomulagi um að greiða eigendum íbúðanna í Reykjanesbæ rúma átta og hálfa milljón króna.
„Auðvitað fannst okkur þetta mjög háar kröfur en okkur hefur tekist bara með góðum samningum að ná niðurstöðu í flestöllum málum og ég vona að það muni bara klárast núna á allra næstu dögum þannig að fólk gangi sátt frá borði,“ segir Unnur.