Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa undirbúið fjölbreytta viðburði tengda sólmyrkvanum sem verður 12. ágúst. Von er á þúsundum gesta á svæðið.
Í Suðurnesjabæ stendur almyrkvinn lengst á suðvesturhorninu, eða í um 1 mínútu og 45 sekúndur. Helstu áhorfstaðirnir verða á Garðskaga og í Sandgerði. Ljósmengun verður takmörkuð og bætt verður við bílastæðum og salernum. Árni Gísli Árnason bæjarstjóri segir allt gistirými og tjaldstæði þegar fullbókuð.
Í Reykjanesbæ verður haldin myrkvastund í fjórum hverfum: á Ásbrú, í Holtahverfi og tveimur stöðum í Njarðvík. Þar verða meðal annars risagleraugu með almyrkvafilmu og eru íbúar hvattir til að ganga á staðina. Krummi Laxdal Viktorsson verkefnastjóri segir mikilvægt að koma saman og upplifa myrkvann sem heild, upplifunin verði margfalt sterkari þannig.