Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til aðhlynningar samkvæmt dagbók lögreglu.
Tilkynnt var um líkamsárás í Breiðholtinu en um var að ræða minniháttar meiðsli. Hins vegar þurfti að kalla til barnaverndar sökum ungs aldurs gerenda.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Í Hafnarfirði voru tveir handtkenir fyrir ólöglega dvöl í landinu, annar þeirra var einnig handtekinn fyrir að vinna án atvinnuleyfis. Klukkan fimm síðdegis í dag voru tveir vistaðir í fangageymslu lögreglunnar.
Töluverð afskipti voru hafð af ökumönnum sem ýmist voru sviptir ökuréttindum eða grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.