„Það verður auðvitað ánægja þegar lýsingin er komin í gagnið en við skiljum alveg óánægju með að við séum að loka göngunum fyrir umferð. Þetta hefur áhrif,“ segir Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni, um næturlokun í Hvalfjarðargöngum.
Sumir hafa þó fengið undanþágur til að aka um göngin yfir lokunartíma.
Neðansjávargöngin hafa verið lokuð að næturlagi, eða frá 21:30 til 06:00 frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, síðastliðnar fimm vikur. Ástæðan er endurnýjun lýsingar í göngunum. Valgarður segir verkefninu miða vel áfram.
„Allt á áætlun og við vonum það besta,“ segir Valgarður. Áætluð verklok eru 29. maí.
Hann segir undanþágur hafa verið veittar svo starfsmenn Norðuráls, Elkems og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands geti komist um göngin á lokunartíma. Strætisvagnar fá þó ekki slíka undanþágu.
„Það var vissulega skoðað en það er bara of stór bíll,“ segir Valgarður. Akstur strætó um göngin hefði raskað vinnunni um of. Strætó hafi náð að gera breytingar á áætlunum hjá sér sem gerðu Vegagerðinni kleift að hafa lokað fyrir umferð vagna þeirra.
Heldur stuttur fyrirvari var á fyrirkomulagi næturlokana Hvalfjarðarganga. Valgarður sagði í viðtali við RÚV í byrjun apríl að upplýsingagjöf fyrir verkefnið hefði mátt vera meiri.