Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir brot á áfengislögum eftir að mikið magn áfengis, sem hann hafði bruggað sjálfur, fannst á og við heimili hans. Maðurinn kaus að taka ekki til varna og mætti ekki fyrir dóminn.Töluvert er síðan dómar fyrir ólöglegt brugg hafa ratað í fréttir íslenskra fjölmiðla en nýjustu fréttir sem finnast við fljótlega leit eru frá 2012-2013.
Stórtækur bruggari mætti ekki fyrir dóm