Samfélagsmiðlafyrirtæki Trump, Truth Social, byrjaði um mánaðamótin að falbjóða forgang að færslum notenda miðilsins, þar sem Trump er sjálfur langfyrirferðarmestur. Með því að greiða fyrirtæki forsetans allt að hundrað þúsund dollara á mánuði geta fjármálafyrirtæki þannig fengið aðgang að færslum forsetans á undan öðrum. Færslur hans valda iðulega hreyfingum á mörkuðum.
Nú hefur fjömiðillinn The Intercept og Fjölmiðlafrelsissjóðurinn (e. Freedom of Press Foundation) stefnt forsetanum vegna sölunnar. Í stefnunni er þjónustunni lýst sem „óvenjulegri, spilltri og andstæðri stjórnarskrá“.
Þá telja stefnendurnir að salan brjóti gegn réttindum þeirra til þess að fá aðgang að yfirlýsingum forsetans á jafningagrundvelli á við aðra fjölmiðla og almenning, að því er segir í frétt Politico af stefnunni. Þeir krefjast þess að dómari leggi lögbann við sölunni.
Þjónustan hefur sætt harðri gagnrýni. Bent hefur verið á að Trump og þeir sem kaupa þjónustan gætu gerst sekir um innherjasvik.
Trump-fjölskyldan á um fjörutíu prósent hlutafjár í móðurfélagi Truth Social.