Hvað ef foreldrar kenna börnum sínum eitt í orði en sýna svo aðra framkomu á borði? Þessu veltir móðirin og meistaraneminn Birta Róbertsdóttir fyrir sér í aðsendri grein hjá Vísi þar sem hún bendir á að foreldrar þurfi að vera fyrirmynd og geti ekki lagt það að börnum sínum að gera eitt geri þeir sjálfir annað.
Spyr hvort eineltið byrji kannski við eldhúsborðið heima - „Hvað ef við foreldrarnir erum sjálf hluti af vandanum?“