Sophie Cunningham benti á karlmann sem spilaði með mótherjanum

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Leikmaðurinn Sophie Cunningham benti á karlmann sem spilaði með mótherjanum í körfubotlaleik á dögunum. Það vakti mikla athygli og umræðu.
Stúlkur rísa víða upp gegn þessari plágu, að karlmenn keppi í kvennaflokki. Á Íslandi hefur kona ekki unnið í frisbígolfi í 10 ár, því tveir karlmenn sem skilgreina sig konur hafa unnið kvennaflokkinn.
Það er enginn á móti fólki sem skilgreinir sig trans í íþróttum, það á bara að keppa í þeim flokki sem samsvarar eigin kyni, ekki kynvitund. Snýst ekki um hatur, heldur réttlæti fyrir stúlkur og konur. Það munu alltaf vera konur sem skilgreina sig trans og keppa í kvennaliðum. Þetta snýst ekki um kynvitund, heldur um að standa með konum og stúlkum á grundvelli líffræðilegs kyns.
Sophie Cunningham gerir eitthvað sem ógnar kerfinu enn meir – hún sýnir að íþróttakona sem enn keppir getur sagt það sem öllum er augljóst, tekið gagnrýnina á sig og samt staðið með máli sínu.
Fær víða stuðning
Tennisgoðsögnin Martina Navratilova styður Sophie Cunningham opinberlega þar sem körfuboltamaðurinn heldur áfram að vekja athygli fyrir að mótmæla körlum sem segjast konur í íþróttinni. Martina Navratilova styður konur, er hlynnt konum og er annt um kvennaíþróttirnar.
Á umræddum leik var hópur kvenna og karla sem merkti sig í bolum XX- XY og studdu Sophie Cunningham. Eitthvað sem allar konur ættu að gera. Misskilin samúð með körlum sem sjá ekki sóma sinn í að keppa með eigin kyni bitnar á réttlátri og sanngjarnri keppni fyrir stúlkur og konur.
„Við bendum öll á vandamálið. Allir sjá kvenfyrirlitninguna sem felst í því að leyfa körlum og drengjum sem glíma við sjálfsmyndarvanda að keppa eða vera í flokki kvenna. Sérð þú það?“ sagði ein sem var í þessum hópi.
Skiptar skoðanir eru um hvort karlmenn, sem segjast konur, eigi að keppa í kvennflokki í körfuboltanum í USA og einn benti á að þeir séu innan við 10 og skipti ekki sköpum, hann undrast vandamálið.
Á móti var bent á, úr því þetta er ekki vandamál af hverju spilar umræddir karlmenn þá ekki í sínum flokki, með karlmönnum. Kannski upplifa menn þetta ekki vandamál í körfuboltanum en í fjölda íþrótta eru karlmenn, sem segjast konur, vandi. Kvennaflokkar eru fyrir konur.
Karlar eiga ekkert erindi í kvennaflokka
Fyrir um mánuði komst Cunningham í fréttirnar eftir að hún ræddi um þá skoðun sína að transkonur- sem eru líffræðilegir karlmenn- ættu ekki að fá að keppa í íþróttum með konum.
Cunningham sagði: ,,Ég fékk mikið af neikvæðum viðbrögðum um að ég hataði trans. Og ég hugsaði: 'Ég sagði það aldrei,'" sagði leikmaður Indiana Fever við fréttamiðil í júlí. "Ég held að ég sé hér til að sýna ást. En ég held líka, að með því sé ástin sannleikur, að vera heiðarlegur. Og ég vil vernda ungar stúlkur í búningsklefa og að ungar stúlkur í íþróttum þurfi ekki að keppa við líffræðilega karla."
Þetta eru ekki óalgeng viðbrögð trans aðgerðasinna, að skálda eitthvað sem viðkomandi hefur aldrei sagt og bera það út. Við þekkjum þetta víða frá, m.a. hér á landi. Nei það hatar enginn fólk sem skilgreinir sig trans, réttlæti til handa stúlkum og konum er það sem skiptir máli.
,,Sophie er ekki AND-TRANS – heldur er hún PRO KONUR!!," skrifaði Navratilova, 69 ára, í gegnum X sunnudaginn 2. ágúst. "Röng fyrirsögn!"
Hér má hlusta á umræðu um málið þar sem þeir segja, nær allir eru sammála henni: