Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður verða sá fjórði stærsti á landinu.
Sjóðirnir tilkynntu í lok maí að þeir hefðu hafið sameiningarviðræður.
Sameiningin er háð lagabreytingu en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur undirritun samrunasamnings sjóðanna í dag og undirritaði viljayfirlýsingu um að hann muni beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum verði sameiningin samþykkt.