Þetta segir í ákæru á hendur Skúla Tómasi, sem Vísir hefur undir höndum en greint var frá útgáfu ákærunnar í lok mars. Í henni segir að hann sé ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, með því að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi.
Þung lyfjameðferð
Hún hafi verið lögð inn á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fimmtudaginn 1. ágúst 2019, þar sem Skúli Tómas var yfirlæknir og bar ábyrgð á læknisfræðilegri meðferð Dönu, en hann hafi sett Dönu á lífslokameðferð sama dag þrátt fyrir að hún hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm og tekið ákvörðun um og séð til að Dönu yrðu gefin slævandi lyf, það er morfín og morfínskyld lyf, Leponex (clozapine) og Dormicum (midazolam).
„Leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar á sjúkrahúsinu laugardaginn 19. október 2019.“
Fimm milljónir hvert
Þá segir í ákærunni að fyrir hönd fimm uppkominna barna Dönu sé gerð miskabótakrafa á hendur Skúla Tómasi upp á fimm milljónir króna til handa hverju þeirra.
Þá krefjast þau samanlagt tæplega 900 þúsund króna í skaðabætur vegna útfararkostnaðar.
Ákæran verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness eftir viku.