Sjúkraliði vill verða lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglumenn við störfMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið
Sex sóttu um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Embættið var auglýst laust til umsóknar 2. júní og var umsóknarfrestur til 26. júní. Greint er frá þessu í tilkynningu frá yfirvöldum.
Dómsmálaráðherra skipar í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til fimm ára í senn sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
- Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum
- María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
- Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund
- Úlfar Lúðvíksson, fyrrv. lögreglustjóri á Suðurnesjum
- Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður KNÚ