Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði í vikunni. Lögregla fékk tilkynningu um málið. Yfirlögregluþjónn segir enga hættu hafa skapast.
Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir að sjókvíin hafi verið tóm, engin þyngd í henni og því hafi hún rekið.
Hann segir sjókvína ekki hafa rekið inni á firði, ekki í siglingaleið til eða frá höfninni í Patreksfirði og því hafi hættan ekki verið eins mikil.
Hlynur segir þetta hafa gerst einstaka sinnum en auðvitað ætti þetta ekki að gerast.
Þetta er í annað sinn á þessu ári sem sjókví rekur á land í Patreksfirði, þar sem Arnarlax er með sjókvíaeldi.