Skólamatur á Iðavöllum 1 í Keflavík í Reykjanesbæ er fjölskyldufyrirtæki sem sér um að elda mat fyrir mötuneyti grunnskóla og leikskóla á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu, alls um 130 skóla. Langvinsælasti maturinn er grjónagrautur en með grautnum fá skólakrakkarnir slátur og rúsínur.
„Þannig að það er allt á fullu hjá okkur en hér er verið að dreifa grautnum, sjóða hann og dreifa honum í einingar, sem fara út í skólana,” segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar.
Fimm tonn, þetta er ótrúleg tala eða hvað?
„Magnið skiptir ekki öllu máli, það eru bara svo margir sem vilja vera með okkur í Skólamat, en já, þetta er mikið magn sem við erum að gera af grjónagraut, mikið af mjólk og grjónum,” segir Jón.
Hjá Skólamati vinna um 250 manns og það er alltaf meira en nóg að gera.
„Já, þetta gengur ótrúlega vel en það er náttúrulega bara starfsfólkinu okkar að þakka númer eitt, tvö og þrjú, bara öflugur hópur, sem við höfum hérna af kraftmiklu fólki,” segir Fanný Sigríður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Skólamats.
En hver er uppáhaldsmaturinn hennar frá Skólamat?
„Ég held ég verði að segja Lasagne, það er uppáhaldið mitt.“