Minnst sjö eru látnir og rúmlega 40 særðir eftir drónaárás á baðströnd í Rússlandi. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Árásin var gerð á fjölfarna baðströnd við strandbæinn Gelendzhik við Svartahaf. Veniamin Kondratyev, ríkisstjóri Krasnodar Krai-héraðs, segir Úkraínumenn ábyrga fyrir árásinni. Í færslu á Telegram segir hann að þrjú börn hafi farist í árásinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um árásina.
Grunur er um að dróninn hafi átt að lenda á rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um 40 kílómetra fjarlægð frá ströndinni.
BBC birti myndband af árásinni. Á myndbandinu sést hvítur dróni lenda á miðri ströndinni. Ströndin er fjölfarinn baðstaður og voru margir á ströndinni þegar árásin átti sér stað.
Fréttin var uppfærð með tölu látinna.