Ég er ekki að skrifa þetta sem maður sem er annaðhvort með eða á móti ESB. Ég er bara að horfa á þetta út frá reynslu minni áralöngu af íslenskum stjórnmálum.Það sem hefur verið sagt er: „Við skulum bara fara í viðræður. Skoða samninginn. Síðan fær þjóðin að kjósa.“Það hljómar ágætlega og eins og við höfum engu að tapa en af hverju á ég að treysta því að þetta gangi eftir? Ekki vegna þess að ég telji einhvern vera að reyna að blekkja fólk. Heldur vegna þess að reynslan kennir mér að pólitísk loforð eru alltof oft ekki efnd.
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Er pólitískt loforð nóg?