Það þarf að taka til og skera fitu, hjá ríkinu eins og sveitarfélögum. Við erum að eyða umfram tekjur og það gengur ekki til lengdar. Þá er jákvætt hjá Akureyri og Hafnarfirði sem hafa kynnt að gatnagerðargjöldum megi dreifa á fjóra gjalddaga. Covid var um margt áhugaverður tími og bara ágætur tími fyrir byggingargeirann og byggingavöruverslanir. Fólk fór að dunda að heimilinu í stað þess að ferðast til útlanda. Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Sigurður Brynjar Pálsson: Covid sýndi okkur að við getum leyst hvað sem er