Sigríður Jónsdóttir, sem starfar á Leikminjasafninu, leitar að fólki sem starfaði með eða sá apann sem lék Níels í leikritinu um Línu Langsokk sem sýnt var á Íslandi í byrjun sjöunda áratugarins. Apinn var fenginn að láni frá Bandaríkjunum og bjó á heimili í Kópavogi. Sigríður er nú að rannsaka viðtökur, þýðingar og þróun Línu Langsokks á Íslandi og ræddi um það í Morgunútvarpinu á Rás 2 en fjallað er um þetta ítarlega á vef RÚV.
Sigríður leitar að fólki sem sá apann sem bjó í Kópavogi