Sex hantaveirusmit hafa verið staðfest af átta grunuðum frá því að veiran kom upp í skemmtiferðaskipinu Hondius. Þetta staðfestir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir almenningi stafa lítil hætta af veirunni. Í tilkynningu segir að stofnunin muni „halda áfram að fylgjast með faraldsfræðilegu ástandi og uppfæra áhættumatið“.
Áhættan fyrir farþega og áhöfn skipsins er talin í meðallagi.
Að mati WHO er hættan á að Hondus-hópsmitið verði að heimsfaraldri mjög lítil.