Í bréfinu útlistaði hann það einnig hvernig hann hygðist koma í veg fyrir að of margir dæju fyrir hans hendi að ósekju: nefnilega með því að skjóta höglum í stað kúla vegna þess að höglin brjóta sér ekki eins auðveldlega leið í gegnum veggi.
„Ég myndi samt klára flesta hér til að komast að skotmörkunum ef það yrði bráðnauðsynlegt (á þeim forsendum að flestir völdu að hlusta á ræðu barnaníðings, nauðgara og svikara og eru því samsekir) en ég vona svo sannarlega að til þess komi ekki,“ skrifaði hann hins vegar svo.Einnig sagði hann öryggisgæslunni á Hilton-hótelinu sem viðburðurinn fór fram á ábótavant.Allen skrifaði undir bréfið og kallaði sig „vinalega alríkislaunmorðingjann“. Bréfið barst fjölskyldu hans um tíu mínútum áður en hann lét til skarar skríða sem afhenti það um leið lögreglu.