Selur gullfallegt heimil í Garðabæ

Til sölu er afar falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð við Maríugötu 38 í Urriðaholti í Garðabæ.
Íbúðin er staðsett á þriðju hæð í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu og er skráð 90,1 fermetri að stærð. Ásett verð eignarinnar er 82,5 milljónir króna.
Íbúðin þykir einstaklega rúmgóð og björt með góðu skipulagi. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir þar sem nýtur fallegs útsýnis. Innan íbúðar er sérstakt þvottaherbergi sem eykur þægindi í daglegu lífi, auk þess sem 5,7 fermetra sérgeymsla fylgir eigninni á jarðhæð hússins.
Húsið var byggt árið 2021 af ÞG Verk og er álklætt og því afar viðhaldslétt. Frágangur bæði innan- og utandyra er til fyrirmyndar, með fallegum innréttingum frá GKS og snyrtilegri sameign. Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar og malbikuð bílastæði, auk þess sem myndavéladyrasími eykur öryggi íbúa. Í kjallara er einnig hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Urriðaholti þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og fjölbreytt útivistarsvæði. Í næsta nágrenni eru vinsælar göngu- og hjólaleiðir við Heiðmörk og Urriðavatn sem hafa notið mikilla vinsælda meðal íbúa svæðisins.