Einn var drepinn og fjórir særðust í árás Bandaríkjahers á dælustöð í suðvesturhluta Írans í nótt. Frá þessu greina íranskir ríkismiðlar.
Bandaríkjaher hóf í kvöld árásir að nýju á skotmörk í Íran, annað kvöldið í röð. Stjórnstöð hersins segir þær gerðar til þess að veikja getu Írana til að ráðast á herskip í Hormússundi.
Skömmu eftir að tilkynning Bandaríkjahers var birt fordæmdu írönsk stjórnvöld árásir Bandaríkjanna á Íran síðustu daga. Þau segja árásirnar hafa gert að engu þann árangur sem náðst hafi í viðræðum síðustu mánaða.
„Þessar villimannslegu árásir eru ekkert annað en stórfellt brot á grundvallarreglum stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og einnig alvarleg ógn við frið og öryggi á heimsvísu,“ segir í yfirlýsingu íranska utanríkisráðuneytisins.
Íranar saka bandarísk stjórnvöld þar að auki um að bera ábyrgð á óöruggu ástandi á Hormússundi með því að skipta sér af „nauðsynlegum ráðstöfunum“ sem Íranar hafa gripið til í sundinu.
Árásir Bandaríkjanna í kvöld og í gærkvöld eru svar við árásum Írana á flutningaskip í Hormússundi. Líkt og áður segir er þeim ætlað að draga úr getu Írana til að grípa til slíkra árása.
Stjórnstöð Bandaríkjahers segir að nýjustu árásir hafi verið gerðar að beiðni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.