Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki vita annað en að sonur hans og nafni hafi endurgreitt rússneskum kaupsýslumanni kostnað við tveggja daga brúðkaupsveislu sem haldin var á Bahamaeyjum í maí.
Veislan er sögð hafa kostað um hundrað þúsund dali og hefur vakið siðferðisspurningar og vangaveltur um óeðlileg tengsl fjölskyldu forsetans við Rússa. Trump sagði ekkert ólöglegt við slíka vinargjöf.
Umar Kremlev er auk þess að vera vellauðugur kaupsýslumaður forseti Alþjóðahnefaleikasambandsins og náinn bandamaður Vladimírs Pútíns forseta. Donald Trump yngri og Bettina Anderson eiginkona hans hafa sagt Kremlev náinn vin sinn.
Óháða fréttastofan ProPublica greindi frá því fyrr í september að ólígarki með náin tengsl við Rússlandsforseta hefði á laun lagt út fyrir brúðkaupsveislunni, þar á meðal fyrir leigu á tveimur eyjum í einkaeigu.
Þá sagðist Trump eldri ekkert vita hver Kremlev væri og þvertók fyrir að hann hefði borgað fyrir veisluna. Brúðkaupið hefði verið haldið allt annars staðar en á Bahama.
Bettina Anderson staðfesti fréttina 14. september og sagði Kremlev hafa viljað gleðja þau hjón með óvenju veglegri brúðargjöf. Þingmaðurinn Robert Garcia, sem situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, krafðist ítarlegra upplýsinga um samskiptin við Kremlev.
Í ljósi þess að Trump yngri hefði fjárfest í vopnafyrirtækjum sem eiga í viðskiptum við varnarmálaráðuneytið hljóti allar tengingar fjölskyldunnar við Rússlandsforseta að vekja alvarlegar spurningar.