Innanríkisráðherra Þýskalands, Alexander Dobrindt, segir fund sprengidróna á Leipzig/Halle-flugvellinum marka „nýtt hættustig“ fyrir landið.
Dobrindt segir ekkert benda til þess að viðvaningar hafi verið að verki og að rannsakendur líti á málið sem hluta af fjölþáttaárás. Þá er rannsakað hvort erlent ríki hafi átt þátt í fyrirhugaðri árás, að því er fram kemur í frétt The Guardian.
Rannsaka hvort markmiðið hafi verið að ráðast á úkraínskar flugvélar
Dróninn fannst nærri úkraínskum fraktflugvélum á Leipzig/Halle-flugvelli, sem er mikilvæg flutningamiðstöð fyrir þýska herinn og NATO.
Skömmu áður hafði fraktflugvél þurft að hætta við lendingu á flugvellinum og rakist á óþekktan fljúgandi hlut. Vélin lenti síðar heilu og höldnu í Hannover með minni háttar skemmdir.
Rannsóknin beinist meðal annars að því hvort markmiðið hafi verið að ráðast á úkraínskan búnað eða flutningastarfsemi í Þýskalandi. Leipzig-Halle flugvöllurinn er talinn mikilvægur fyrir flutninga á vegum NATO og þýska hersins.
Rússland ekki nefnt berum orðum
Dobrindt og aðrir þýskir embættismenn nefndu Rússland ekki beint sem mögulegan sökudólg í yfirlýsingum sínum. Sprengidróninn var fundinn hjá úkraínskum fraktflugvélum.
Á síðustu misserum hafa óheimil drónaflug yfir flugvöllum, herstöðvum og öðrum mikilvægum innviðum í Þýskalandi og víðar í Evrópu vakið áhyggjur. Þýsk stjórnvöld hafa áður sakað Rússa um að standa að hluta slíkra aðgerða, en stjórnvöld í Moskvu hafa hafnað þeim ásökunum.