Nýtt kerfi var tekið upp við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli síðasta haust og þurfa nú allir farþegar frá löndum utan Schengen að gefa lífkennaupplýsingar, s.s. fingraför, við komuna til Íslands.
Borið hefur á því að nýja kerfinu hafi fylgt auknar tafir en Ómar Mehemt Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir óumflýjanlegt að svo stöddu að einhverjar tafir fylgi auknu landamæraeftirliti fyrir farþega með ríkisfang utan Schengen-svæðisins.
Þær eigi sér þó eðlilegar skýringar og að ekki séu dæmi um að þær valdi miklu raski á ferð fólks um Keflavíkurflugvöll.
„Landamæraeftirlitið tekur vissulega lengri tíma en áður þar sem afgreiðsluhraðinn er ekki sá sami. Nú er eftirlitið einnig allt með rafrænum hætti en ég kannast ekki við að verulegar tafir hafi orðið á því eða að fólk sé að lenda í margra tíma bið,“ segir Ómar í samtali við mbl.is.
Fletta upp í gagnagrunni Schengen-landa
Hann segir ástæðu þess að eftirlitið sé nú tímafrekara vera að við komuna til landsins sé hverjum og einum flett upp í miðlægum gagnagrunni allra Schengen-ríkja sem sé bæði flókið og umfangsmikið en skili fyrir vikið öruggari landamærum.
„Þetta getur verið mjög flókið en fyrir vikið erum við að fá betra öryggi. Landamæraeftirlitið er öruggara í dag en það var áður eftir að við innleiddum þetta nýja kerfi, en það tekur vissulega lengri tíma,“ bætir hann við
„Ég bendi þó á að þetta hefur verið innleitt í öllum Schengen-ríkjum og þetta er bara eðlileg áskorun vegna innleiðingarinnar. Að auki getur spilað inn í hvenær vélar eru að lenda og hvort þær séu samkvæmt flugáætlun.
Þetta er jú bara ein stór keðja sem þarf að ganga upp og það eru margar breytur sem hafa áhrif,“ segir Ómar að lokum.