Friðarverðlaunahafi Nóbels og stjórnarandstæðingurinn Maria Corina Machado hefur verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins Venesúela. Hún hefur verið í útlegð síðan í desember þegar hún yfirgaf landið og fór til Noregs til að taka á móti Friðarverðlaunum Nóbels.
Ónefndur heimildarmaður í teymi hennar sagði við AFP fréttaveituna að Machado hefði margsinnis reynt að fara aftur til Venesúela.
Þá greindu kólumbíski miðillinn NTN24 og spænska dagblaðið ABC frá því að síðast þegar hún reyndi að fara í landið hefði það ekki tekist vegna flugferðatakmarkana, afbókana á síðustu stundu og tæknilegra bilana.
Machado var ekki boðið til viðræðna um stjórnarskipti milli bráðabirgðastjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar í Venesúela. Hún hefur þó sagt að hún ætli ekki að standa í vegi fyrir viðræðunum.