Samningur milli Írana og Bandaríkjamanna um stríðslok í Íran er ekki í augsýn þó að samist hafi um stóran hluta ágreiningsefna. Þetta sagði Esmail Baghaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun.
Marko Rubio hafði sagt í gærkvöld að von væri um samning í dag. Donald Trump gaf þó þau skilaboð að flýta sér hægt í samningsgerðinni - tíminn ynni með Bandaríkjamönnum. Hann sagði á Truth Social í morgun að samningur við Íran yrði annaðhvort frábær og þýðingarmikill, eða að það yrði enginn samningur.