Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn - Vísir

Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn - Vísir

Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn - Vísir

Svetlana fékk íslenskan ríkisborgararétt í fyrra og fór á kjörstað í fyrsta sinn um síðustu helgi ásamt eiginmanni sínum, Jóni Þorsteini Sigurðssyni. Að sögn hjónanna kom maður að þeim fyrir utan kjörstaðinn, merktur stjórnmálaflokki, og hreytti í Svetlönu á íslensku: „Þú ert ekki heima hérna, drullaðu þér heim, þú ert mara á samfélaginu.“

Jón skrifaði síðar færslu á Facebook um atvikið sem hefur vakið mikla athygli. Hann segir viðbrögðin hafa komið sér á óvart en að tilgangurinn hafi ekki fyrst og fremst verið að fjalla um eitt atvik við kjörstað. Hann hafi viljað vekja athygli á því sem atvikið segi um stöðu fólks af erlendum uppruna á Íslandi.

Jón og Svetlana segja atvikið ekki standa eitt og sér heldur snerta stærri spurningu um það hvenær fólk af erlendum uppruna sé raunverulega tekið gilt sem hluti af íslensku samfélagi.

Kom til Íslands til að læra tónsmíðar

Svetlana kom til Íslands frá Rússlandi í ágúst árið 2017. Hún hafði fengið inngöngu í Listaháskóla Íslands og flutti hingað til að fara í meistaranám í tónsmíðum.

Hún er menntuð í píanóleik og tónsmíðum og starfar í dag meðal annars sem tónlistarkennari, einkakennari í píanóleik og við nótnavinnu og tónsmíðar.

Hún fékk íslenskan ríkisborgararétt á seinasta ári.

„Ég hef byggt líf mitt hér, vinn hér og borga skatta hér,“ segir hún.

Leiðir þeirra Jóns og Svetlönu lágu saman í janúar árið 2018.

Jón og Svetlana benda á að tungumál, vinna og ríkisborgararéttur dugi ekki alltaf til að fólk sé samþykkt.Aðsend/Halldór Ingi

„Það var í blúsmessu hjá Pétri Þorsteinssyni, vini okkar, á sunnudegi. Svetlana hafði verið beðin um að koma og spila í Kirkjukaffinu eftir messu. Ég var þar sem vinur Péturs og tók þátt í messunni. Presturinn ýtti mér svolítið út í að tala við hana í röðinni. Ég settist hjá henni og fór að spjalla. Þá sagði hún mér að hún hefði verið á Íslandi síðan í ágúst 2017 en aldrei farið Gullna hringinn,“ rifjar Jón upp.

Verandi leiðsögumaður til margra ára fékk Jón að eigin sögn nánast „menningarlegt sjokk“ þegar hann heyrði þetta. Það varð úr að fyrsta stefnumót þeirra var á Þingvöllum. Veðrið var íslenskt í sinni einföldustu mynd: kalt, blautt og erfitt að selja útlendingi sem rómantískt stefnumót.

„Ég hafði aldrei farið á svona stefnumót áður og fékk ráð um hvernig ég ætti að klæða mig. Ég mætti í hælum, sem var kannski ekki besta hugmyndin fyrir Þingvelli í kulda og snjó!“ segir Svetlana kímin.

„Það var mjög kalt, en ég fór samt alla leiðina með honum. Þetta var skrýtið stefnumót, en líka fallegt og eftirminnilegt.“

Bónorð og gifting

Eitt leiddi síðan af öðru, eins og Jón orðar það, og árið 2020 bað hann Svetlönu.

„Ég bað hennar 21. júní, þegar sólin var sem hæst. Ég var búinn að undirbúa þetta og var alltaf að spyrja hana hvað klukkan væri. Ég held ég hafi spurt hana fimmtán sinnum. Hún skildi ekkert hvað væri í gangi.“

Svetlana segist hafa áttað sig seint á því hvað var að gerast. 

„Hann var alltaf að spyrja mig: Hvað er klukkan? Hvað er klukkan? Ég skildi ekki af hverju hann var svona upptekinn af tímanum! Svo kom bónorðið og ég var svolítið í sjokki. Ég var ekki búin að skilja að hann væri að bíða eftir nákvæmlega rétta augnablikinu. Hann hafði planað þetta út frá tímanum og sólinni. Ég var bara að hugsa af hverju hann væri alltaf að spyrja mig hvað klukkan væri!“

Þau giftu sig árið 2021 en brúðkaupsdagurinn var nokkuð óvenjulegur þar sem þau gengu í hjónaband með fleiri en einni athöfn.

„Við giftum okkur sem sagt fjórum sinnum. Fyrst giftum við okkur í Þingvallakirkju. Við vildum hafa Sólveigu Láru og Kristján Björnsson, vígslubiskupar, og við giftum okkur á Þingvöllum af því fyrsta stefnumótið okkar var þar. Svo giftum við okkur úti í rigningu hjá Hilmari Erni allsherjargoða, af því að Svetlana vildi líka fá hann. Svo, af því við vorum komin með þrjá vígslumenn í verkefnið og ég vildi líka að Pétur vinur minn myndi gifta okkur, þá enduðum við með fjórar athafnir. Við fengum líka lögfræðing til að lesa upp heitin eins og sýslumaður gerir. Þannig giftum við okkur samkvæmt kristnum sið, heiðnum sið, hjá lögfræðingi og svo hjá Pétri presti í lokin,“ segir Jón.

Þau hjónin létu ekki nægja að gifta sig einu sinni, heldur fjórum sinnum.Aðsend/Halldór Ingi

Í síðustu athöfninni ákvað Svetlana síðan að koma Jóni á óvart. Hún fékk vin þeirra til að breyta giftingarheitunum án hans vitundar. 

„Presturinn spurði: Vilt þú, Jón Þorsteinn, baka 32 pönnukökur alla laugardaga þar til dauðinn aðskilur ykkur? Ég sagði já og ég hef svo sannarlega staðið við það,“ segir Jón en pönnukökubakstur er nú fastur liður á heimilinu.

„Það er eiginlega bara fjarvera eða veikindi sem afsaka það ef það er enginn pönnukökubakstur á laugardagsmorgni. Vinir mínir vita þetta líka og koma oft um ellefuleytið til að fá pönnukökur hjá mér.“

Þau ætluðu síðan að endurtaka brúðkaupsveisluna á eins árs brúðkaupsafmælinu svo fjölskylda Svetlönu gæti verið viðstödd. Stríðið í Úkraínu og Covid-faraldurinn komu hins vegar í veg fyrir það.

Þau dóu þó ekki ráðalaus heldur slógu því til garðveislu fyrir hverfið í staðinn, á ársafmæli giftingarinnar. Útkoman var heljarinnar partý; það voru grillaðar pylsur, hljómsveitin Sérfræðingar að sunnan spilaði fyrir gesti og Herbert Guðmundsson mætti síðan í lokin og reif upp stemninguna.

„Við ákváðum síðan að nota þetta tækifæri og safna fyrir fötluð börn sem búa við stríðsaðstæður og náðum að safna tæplega 50 þúsund krónum fyrir Þroskahjálp.“

„Ég er orðin þreytt á að bregðast við“

Í dag búa þau á Teigunum með hundum sínum tveimur. Jón hefur um árabil unnið að málefnum fatlaðs fólks og segir þá reynslu hafa mótað sýn sína á það hvernig minnihlutahópar þurfi oft að berjast fyrir því að vera teknir alvarlega.

„Ég hef unnið lengi með hópum sem þurfa oft að hafa hátt til að fá að njóta sjálfsagðra réttinda. Það hefur kennt mér að það skiptir máli hver fær að tala og hvern er hlustað á. Ég get haft mikla þekkingu á málefnum fatlaðs fólks, en ég get aldrei talað af sömu reynslu og manneskja sem hefur lifað þá reynslu sjálf. Það sama á við hér: Svetlana veit hvernig þetta er á eigin skinni,“ segir hann.

Svetlana segir atvikið við kjörstaðinn ekki hafa komið úr tómarúmi. Hún hafi oft upplifað að vera fyrst og fremst skilgreind sem útlendingur, jafnvel eftir að hún fékk íslenskan ríkisborgararétt.

Svetlana klæddist rússneskum þjóðbúningi við giftingarathöfnina.Aðsend/Halldór Ingi

Hún segir að sumt gerist svo oft að hún sé hætt að segja frá því í hvert skipti.

„Þetta er hluti af mínu daglega lífi. Ég er orðin svo þreytt að ég bregst ekki alltaf við og ég segi Jóni ekki alltaf frá því sem gerist. Ef ég myndi bregðast við í hvert einasta skipti myndi ég ekki geta haldið áfram eðlilegu lífi. 

Maður verður þreyttur á því að þurfa stöðugt að útskýra að maður eigi rétt á sömu virðingu og aðrir.

Hún nefnir sem dæmi samskipti við banka. Hún segist hafa staðið í röð og heyrt hvernig starfsfólk ræddi við íslenska viðskiptavini, útskýrði mál og gaf sér tíma. Þegar hún kæmi að sama afgreiðsluborði væri viðmótið stundum allt annað.

„Ég heyri fólk fá langar og kurteisar útskýringar. Svo kem ég að borðinu og fæ stutt svör, eins og það eigi bara að klára mig sem fyrst. Ég á peninga í þessum banka, ég vinn þrenn störf og ég borga skatta hér. Ég er ekki að biðja um sérstaka meðferð, bara sömu framkomu og aðrir fá. Það er mjög þreytandi að upplifa að maður sé alltaf aðeins fyrir utan,“ segir hún.

Svetlana tekur fram að þetta eigi ekki við um alla. Hún hafi líka mætt mikilli hlýju og hjálpsemi á Íslandi en hún segir að það breyti ekki því að endurtekin reynsla af útilokun setjist í fólk.

„Ég á íslenska vini og hef kynnst mörgu góðu fólki hér. Ég vil alls ekki segja að allir komi illa fram við fólk af erlendum uppruna. 

En þegar ákveðin framkoma endurtekur sig aftur og aftur hættir maður að sjá hana sem einstakt tilvik. Þá verður þetta eitthvað sem maður þarf að læra að lifa með.

„Að læra íslensku leysir ekki allt“

Svetlana segir að fólk af erlendum uppruna heyri oft að það þurfi bara að læra íslensku til að verða samþykkt. Hún segir málið ekki alltaf svo einfalt.

Hún nefnir vinkonu sína sem fæddist í Kína en var ættleidd hingað til lands af íslenskum foreldrum. Hún ólst upp á Íslandi, gekk hér í leikskóla, skóla og háskóla og talar íslensku eins og móðurmál.

„Hún sagði mér að þetta hefði samt gerst við hana. Hún hefur búið hér allt sitt líf, talar íslensku eins og Íslendingur og þekkir ekkert annað samfélag sem sitt eigið. Samt hefur fólk kallað á eftir henni á íslensku: „Hey, kínverski api, farðu úr landinu okkar!“ Þá sér maður að þetta snýst ekki bara um tungumálið.“

Jón segir þetta vera eitt af því sem sitji mest í sér, að ríkisborgararéttur, vinna, skattgreiðslur og tungumál dugi ekki alltaf til að fólk sé tekið gilt sem hluti af samfélaginu.

„Það er oft talað eins og lausnin sé einföld: Lærðu tungumálið, farðu að vinna, borgaðu skatta og taktu þátt. En svo sjáum við dæmi um fólk sem gerir allt þetta og er samt alltaf sett í sama hólf af því það hefur ekki íslenskt föðurnafn. 

Þá er spurningin: Hvenær hættir manneskja að vera útlendingur í augum annarra? Ef svarið er aldrei, þá þurfum við að ræða það heiðarlega.

Kennir næstu kynslóð tónlist

Svetlana leggur áherslu á að hún vilji ekki þurfa að telja upp störf sín eða menntun til að sanna að hún eigi rétt á virðingu. Hún segir alla eiga rétt á mannlegri reisn, óháð því hvað þeir leggja til samfélagsins í efnahagslegum skilningi. Samt sé mikilvægt að benda á hversu röng og einfölduð myndin geti orðið þegar talað sé um útlendinga sem byrði á samfélaginu.

Svetlana kennir íslenskum börnum og ungmennum tónlist. Hún segir tónlistarmenntun ekki aðeins snúast um að ala upp tónlistarfólk heldur líka um aga, sköpun, næmi og mennsku.

„Ég kenni börnum sem verða kannski aldrei tónlistarmenn. Þau verða kannski læknar, verkfræðingar, arkitektar, kennarar eða eitthvað allt annað. En tónlist snertir fólk og kennir því að hlusta, einbeita sér og skynja fegurð. Ég trúi því að listmenntun hjálpi til við að ala upp betra fólk,“ segir Svetlana.

Hún segir tónlistarþekkingu ganga á milli kynslóða, frá kennara til nemanda. Sú þekking sé ekki öll í bókum heldur einnig í persónulegri miðlun, reynslu og handverki.

„Ég kem úr tónlistarhefð þar sem þekkingin færist frá kennara til nemanda. Í minni menntun liggur hefð sem má rekja til stórra tónskálda eins og Shostakovich og Rimsky-Korsakov. Þetta er þekking sem maður heldur á og ber áfram til næstu kynslóða. Þegar ég kenni börnum hér á Íslandi er ég líka að miðla þeirri hefð áfram,“ segir hún.

Svetlana lýsir því að hún hafi oft upplifað að vera skilgreind fyrst og fremst sem útlendingur, jafnvel eftir að hún fékk íslenskan ríkisborgararétt. Hún segist stundum vera orðin svo þreytt á þessu að hún bregðist ekki lengur við í hvert sinn.Aðsend

Jón segir þetta sýna hversu fjarstæðukennd sú fullyrðing sé að líta á Svetlönu sem byrði á samfélaginu.

„Konan sem var kölluð „mara á samfélaginu“ er að kenna íslenskum börnum tónlist. Hún er að vinna, borga skatta og miðla þekkingu sem annars væri ekki til staðar hér með sama hætti. 

Það þýðir ekki að hún þurfi að sanna tilverurétt sinn með því að vera gagnleg en það sýnir hvað þessi hugsun er grunn og ósanngjörn.

Fyrsta sinn á kjörstað

Kosningadagurinn átti að vera ánægjulegur dagur. Svetlana hafði fengið ríkisborgararétt árið áður og var að nýta kosningarétt sinn á Íslandi í fyrsta sinn.

Hún hélt á íslenska vegabréfinu sínu. Jón segir það hafa verið blátt og áberandi í hendinni á henni þegar þau gengu að kjörstaðnum. Hann hafi útskýrt fyrir henni framkvæmdina, hvaða bókstafir tilheyrðu hvaða framboðum og hvernig kosningin færi fram. Þau töluðu saman á ensku.

„Við vorum bara að ræða hvernig þetta færi fram. Hún var að fara að kjósa í fyrsta sinn og vildi skilja allt rétt. Ég var ekki að segja henni hvað hún ætti að kjósa heldur útskýra kerfið og bókstafina. Hún tók þetta mjög alvarlega og vildi ekki gera mistök,“ segir Jón.

Svetlana segir að hún hafi verið glöð og spennt. Hún hafi undirbúið sig og litið á kosninguna sem mikilvægan þátt í því að vera orðin hluti af samfélaginu.

„Ég var í mjög góðu skapi. Ég hafði kynnt mér flokkana og hugsað vel um valið mitt. Þetta var í fyrsta sinn sem ég kaus á Íslandi og mér fannst það skipta máli. Ég vildi gera þetta rétt og bera virðingu fyrir ferlinu,“ segir Svetlana.

Þá hafi maður komið að þeim fyrir utan kjörstaðinn. Að sögn Jóns var maðurinn merktur stjórnmálaflokki. Hann hafi beint orðum sínum að Svetlönu.

„Hann sagði við hana að hún ætti ekki heima hér. Hann sagði henni að drulla sér heim og kallaði hana mara á samfélaginu. Hún skildi ekki öll orðin sjálf á þeirri stundu, en hún skildi tóninn. Ég brást illa við, reiddist og sagði að ég myndi hringja á lögreglu ef hann færi ekki,“ segir Jón.

Svetlana segir að hún hafi ekki áttað sig strax á öllu sem sagt var en hún hafi skilið að reiðin beindist að henni.

„Ég skildi ekki nákvæmlega orðin, því ég þekkti ekki þessi orð á íslensku. En ég skildi tóninn og ég skildi að hann var reiður við mig. Það var skrýtið, því ég var bara þarna að fara að kjósa eins og aðrir borgarar. Ég var með íslenskt vegabréf í hendinni og samt var mér sýnt að ég ætti ekki heima þarna,“ segir hún.

Inni á kjörstaðnum hafi hins vegar allt gengið vel. Starfsfólkið hafi verið hjálplegt og Svetlana hafi fengið leiðbeiningar um framkvæmdina.

„Upplifunin inni á kjörstaðnum var góð. Þar var fólk almennilegt og tilbúið að hjálpa. Hún tók sér tíma, las yfir og kaus. 

Það var þessi eini maður fyrir utan sem breytti deginum.

Ætlaði fyrst að skrifa reiðilestur

Atvikið sat í Jóni á eftir. Hann segir að það hafi tengst stærra samhengi í huga sínum; umræðu sem hefði verið áberandi í kosningabaráttunni og eftir kosningar.

Hann segist fyrst hafa sest niður til að skrifa reiðilega færslu á Facebook en síðan hafi hann hugsað málið betur og breytt textanum.

„Ég var reiður yfir því sem hafði gerst og yfir því að sjá konuna mína gerða að einhverju tákni í augum annars manns. En þegar ég fór að hugsa þetta betur sá ég að þetta snerist ekki bara um þennan eina mann. Þetta snerist líka um jarðveginn sem svona orð vaxa í,“ segir Jón.

Jón segir að þegar stjórnmálaflokkar, stofnanir eða fólk í áhrifastöðum þegi gagnvart niðurlægjandi framkomu geti þögnin verndað slíka hegðun. ÞAðsend

Í færslunni, sem yfir 200 manns hafa deilt áfram á facebook, skrifaði hann að þögn gæti orðið skjól.

Hann segir það enn vera kjarnann í því sem hann vildi koma á framfæri.

„Ef stjórnmálaflokkar, stofnanir eða fólk í áhrifastöðum þegja þegar svona framkoma birtist, þá verður þögnin að skjóli. Ég er ekki að segja að allir í einhverjum flokki séu vondir eða að fólk megi ekki hafa mismunandi skoðanir á innflytjendamálum. En það þarf að vera hægt að draga mörk við það að niðurlægja fólk og segja því að það eigi ekki heima hér. Annars verður þetta smám saman eðlilegur hluti af umræðunni.“

Hann segir eðlilegt að fólk takist á um stjórnmál, þjónustu, kerfi og stefnu en það sé annað en að gera fólk að vandamáli vegna uppruna þess.

„Við getum verið ósammála um Borgarlínu, innflytjendakerfi, stjórnsýslu eða Evrópumál. Það er eðlilegt í lýðræðissamfélagi. 

En þegar kona sem er íslenskur ríkisborgari, vinnur hér og tekur þátt í samfélaginu er samt sögð ekki eiga heima hér, þá erum við komin í aðra umræðu. Þá er ekki verið að ræða stefnu heldur mennsku.

Vill samtal, ekki þögn

Svetlana segist hafa ákveðið að tala opinberlega vegna þess að færsla Jóns hafi fengið stuðning og opnað á umræðu. Hún vilji ekki ýta undir reiði heldur benda á veruleika sem margir þekki.

Hún segist trúa á menningarsamtal og að samfélög verði ríkari af því að ólíkt fólk komi saman.

„Ég vil ekki að þetta snúist bara um reiði. Ég vil að fólk skilji að svona framkoma hefur áhrif á raunverulegt fólk. Þögn leysir ekkert, en samtal getur breytt einhverju. Við erum öll manneskjur og eigum öll skilið virðingu,“ segir hún.

Jón tekur undir. Fyrir honum snýst málið um mannlega reisn.

„Mennskan er það mikilvægasta sem við höfum, burtséð frá því hvaðan við komum eða hver við erum. Það á ekki að taka hana af fólki vegna þess að það lítur öðruvísi út, talar með hreim eða kemur annars staðar frá. Það er hægt að vera ósammála fólki án þess að svipta það virðingu. Það er það sem mér finnst skipta mestu máli. Því samfélag sem glatar mennskunni glatar um leið því sem heldur fólki saman.“

#drulla #heim #sagt #sér #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262888209d/sagt-ad-drulla-ser-heim-thegar-hun-aetladi-ad-kjosa-i-fyrsta-sinn

📰 Aðrar fréttir

Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 1
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 1
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 1
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 1
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 2
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 3
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 2
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...