Ósáttir íbúar í Hafnarfirði hafa stofnað til undirskriftasöfnunar þar sem nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í bænum er mótmælt.
Ábyrgðarmaður söfnunarinnar er Tinna Björt Karlsdóttir en í lýsingu á söfnuninni á vefsvæði Stafræns Íslands er sagt að með samstarfinu sé farið gegn vilja kjósenda.
Þegar þetta er skrifað hafa nær 500 manns skrifað undir til að mótmæla hinum nýja meirihluta. Flokkarnir þrír tilkynntu fyrr í dag að samkomulag hefði náðst um nýjan meirihluta í bænum en meirihlutasáttmálinn verður kunngjörður á morgun.
Vilja sjá Framsókn og Sjálfstæðisflokk áfram
Mikið hefur gengið á við myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Í síðustu viku slitu sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsókn og var ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur.
Í lýsingu söfnunarinnar segir að Framsókn hafi verið meðal stærstu sigurvegara kosninganna og að fjölmargir hafi kosið flokkinn sérstaklega til að halda áfram samstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn. Þá hafi margir viljað sjá Valdimar Víðisson áfram í bæjarstjórastólnum.
Segir jafnframt að það að mynda meirihluta án þátttöku Framsóknarflokks veki upp alvarlegar spurningar um virðingu fyrir vilja kjósenda og dragi úr trausti á stjórnmálum sveitarfélagsins.
„Rödd kjósenda á að skipta máli við myndun meirihluta og við val á bæjarstjóra. Með undirskrift okkar lýsum við yfir andstöðu við þessa niðurstöðu og stuðningi við að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fari áfram með meirihluta í Hafnarfirði,“ segir um undirskriftasöfnunina.