Tvær eignir í miðjum Mosfellsdal eru komnar á sölu. Báðar eru sannkallaður sælureitur í sveitinni þar sem stutt er í alla þjónustu. Eignirnar eru Reykjadalur 3A og 3B og er hægt er að kaupa aðra eignina eða báðar vilji stórfjölskyldan sameinast á einum stað.
Reykjadalur 3B er áhugaverð og öðruvísi eign sem býður upp á mikla möguleika. Ásett verð er 203 milljónir króna
Eignin sem er byggð 1999 og 2018 er 923 fm: gróðurhúsið sjálft er 720fm, inni í því er aðalhúsið 140 fm g sér gestahús 33 fm, samtals 173 fm. Bílskúrinn er 152 fm og bílskýli 51 fm.

Aðalhúsið skiptist í forstofu, stofu með útgengi út á verönd þar sem er heitur pottur og grillaðstaða, eldhús þar sem eru sérsmíðuð húsgögn sem eru í anda hússins, herbergi með en-suite baðherbergi og gestasnyrtingu.
Úr eldhúsi/borðstofu er útgengt gegnum tvöfalda rennihurð út í gróðurhúsið. Glerhúsið býður upp á mikla möguleika á nýtingu hvort sem aðilar vilja taka á móti stórum hópum í veislu, rækta gróður eða undir atvinnustarfsemi. Lóðin er mikið til í gróðri.

Verönd snýr í suður fyrir framan hús með kamínu og flottu pallalögðu útisvæði.

Gestahúsið skiptist í alrými með eldhúskrók og stofu, herbergi og baðherbergi.
Bílskúrinn er 150 fm og 51 fm stórt bílskýli byggt við bílskúrinn fyrir framan aðaldyr.
Gróðurhúsið er hellu- og timburlagt á pöllum, mikið af ýmiss konar trjám og gróðri. Búið að útbúa bar á einum stað, kósý horn á öðrum.

Reykjadalur 3A stendur á fallegri lóð við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal. Ásett verð er 285 milljónir króna.

Eignin sem er byggð á árunum 2018-2026 er 454,6 fm og samanstendur af 231,7 fm íbúðarhúsi, 85,9 fm auka íbúð/gestahúsi og 137 fm bílskúr og geymslu.
Íbúðarhúsið skiptist í forstofu með þvottahúsi inn af og sérútgangi, gestasalerni, alrými með eldhúsi, þar sem heimilistæki eru innbyggð, og stofu með arni. Úr alrýminu er gengið inn í sjónvarpsherbergi. Á efri hæð er herbergi/skrifstofurými.

Á svefnherbergisgangi er gert ráð fyrir stóru hjónaherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út í garð.

Þá eru þrjú barnaherbergi með millilofti með gluggum. Við enda svefnherbergisgangs er stórt baðherbergi, þaðan er útgengi út í garð og á pall með heitum potti.

Mikill trjágróður er á jörðinni og rennur Suðurá með suðurlóðarmörkum.
Nánari upplýsingar um eignirnar má finna hér og hér.