RÚV og Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun og fyrrverandi ritstjóri Kveiks, voru sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í svokölluðu byrlunarmáli sem Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, höfðaði.
Þinghaldið í málinu var lokað og því liggja forsendur dómsins ekki fyrir, en Berglind Svavarsdóttir lögmaður staðfestir að sýknað hafi verið í málinu, sem snerist um miskabótakröfu Páls.
Páll þarf að greiða bæði RÚV og Þóru 700 þúsund krónur í málskostnað.
Málið má rekja til fullyrðinga hans um meint brot á friðhelgi einkalífs þar sem því var haldið fram að sími Páls hefði verið afritaður á meðan hann lá á gjörgæslu og gögnum komið í hendur fjölmiðla sem síðan hefðu gert úr því fréttir. Í þeirri lögreglurannsókn höfðu upphaflega sex blaðamenn og ein kona réttarstöðu sakbornings, en málið var fellt niður eftir þriggja ára rannsókn því það þótti ekki líklegt til sakfellingar.