Svo virðist sem þetta sé annað banatilræðið gegn rússneskum hergagnaframleiðanda á einni viku.
Samkvæmt rússneskum fjölmiðlum var Tkachuk, sem er stofnandi fyrirtækisins Uraldronzavod, staddur í þorpinu Bolshoy Isto, sem er skammt frá Yekatierinburg, borginni þar sem fyrirtækið framleiðir „Upyr“-drónana svokölluðu, þegar bíll hans sprakk.
Þetta var, samkvæmt Moscow Times, í gær en fregnir bárust ekki af sprengingunni fyrr en í morgun þegar myndbönd frá vettvangi fóru í dreifingu.
Aðrir miðlar ytra segja að svo virðist sem sprengju hafi verið komið fyrir undir bíl Tkachuks. Yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert sagt um málið en Rússar hafa áður sakað Úkraínumenn um að bera ábyrgð á banatilræðum og launmorðum á Rússum sem tengjast herstjórn og hergagnaframleiðslu.
Auk þess að framleiða dróna fyrir herinn stýrir Tkachuk vinsælli síðu á Telegram.
Drónar eins og „Upyr“ spila stóra rullu í stríðinu í Úkraínu. Þar er um að ræða tiltölulega smáa dróna sem stýrt er með sýndarveruleikagleraugum. Upyr þykir ódýr í framleiðslu en í senn áreiðanlegur á víglínunni.
In Yekaterinburg, the car of Vladimir Tkachuk, CEO of Uraldronzavod, which produces “Upyr” drones for the Russian army, was blown up.
— Visegrád 24 (@visegrad24) August 5, 2026
Tkachuk is in intensive care in critical condition, and his driver was killed. pic.twitter.com/Vlnn7e2YIz