Úkraínsk yfirvöld segja Rússlandsher hafa gert flugskeytaárás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.
Blaðamenn AFP heyrðu tvær lotur sprenginga í borginni í nótt. Loftvarnarflautur ómuðu nokkrum mínútum eftir fyrstu sprenginguna.
Tymur Tkachenko, forsvarsmaður hermálayfirvalda í borginni, staðfestir á Telegram að eldflaugaárás hafi verið gerð. Hann hvetur íbúa til að leita skjóls.
Á síðustu vikum hefur Rússlandsher beint tugum ofurhraðskreiðra skotflauga í átt að úkraínsku höfuðborginni en loftvarnarkerfi í landinu hafa ráðið illa við þær. Mikill skortur hefur verið á Patriot-flaugum í Úkraínu en Bandaríkjamenn ætla að leyfa Úkraínumönnum að framleiða sínar eigin flaugar.
Í morgun gerði Úkraínuher árás á olíuhreinsistöðvar í suðurhluta Rússlands. Árásir Úkraínumanna hafa að undanförnu beinst í auknum mæli að orkuinnviðum í Rússlandi. Víða er farið að bera á eldsneytisskorti í landinu en árásunum er ekki síst ætlað að skerða tekjur stjórnvalda í Kreml og gera þeim þannig erfiðara fyrir að fjármagna stríðsrekstur sinn.