Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný verður á morgun. Þegar hafa um 21% kjósenda skilað inn atkvæði utan kjörfundar.
Fréttastofa náði tali af Sigríði Kristinsdóttur, sýslumanni höfuðborgarsvæðisins, skömmu fyrir hádegi. Þá höfðu 57.223 greitt atkvæði utan kjörfundar, hjá sýslumönnum, ræðismönnum og í sendiráðum. Það eru rétt tæp 21% kjósenda en 272.690 eru á kjörskrá.
38.013 kjósendur höfðu greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Það eru rúm 28% þeirra sem eru á kjörskrá á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi. Þar eru 135.317 á kjörskrá.
„Við höfum ekki séð áður svona mikla kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslunni,“ segir Sigríður.
Hvar er hægt að kjósa?
Enn er hægt að kjósa utan kjörfundar víða um land. Upplýsingar um hvar það er hægt og hve lengi er að finna á vefnum Sýslumenn.is.
Hægt er að greiða atkvæði í Kringlunni til klukkan 18:30 í kvöld. Þá verður opið til 21 hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Þau sem hafa lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins geta einnig greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi á morgun, frá 10 til 17. Sýslumaðurinn kemur atkvæðunum síðan í rétt kjördæmi.
Frekari upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna er að finna á Þjóðaratkvæði.is.