Íslandsvinurinn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í ræðu í Aþenu í dag til endurreisnar vestrænnar menningar og sterkari samstöðu Bandaríkjanna og Evrópu. Hann sagði Vesturlönd hafa grafið undan eigin styrk með því að afneita arfleifð sinni, veikja varnir og framselja sífellt meira fullveldi til alþjóðlegra stofnana.
Með Akrópólishæð í bakgrunni rakti Rubio rætur vestrænnar menningar til Grikklands til forna. Þaðan kæmu ekki aðeins lýðræði og heimspeki heldur einnig forvitni, metnaður, hugrekki og viljinn til að kanna hið óþekkta.
Þessa eiginleika sagði hann Vesturlönd þurfa að endurheimta á tímum vaxandi samkeppni stórvelda.
„Við kenndum börnunum okkar að skammast sín“
Rubio gagnrýndi harðlega það sem hann lýsti sem dvínandi sjálfstrausti Vesturlanda. Velmegun hefði orðið uppspretta sektarkenndar og þjóðerniskennd að skammaryrði.
„Við rifum niður minnisvarða okkar. Við fordæmdum eigin sögu og á allt of mörgum stöðum kenndum við börnunum okkar að skammast sín fyrir löndin sem þau myndu erfa,“ sagði Rubio.
Samhliða þessu hefðu Vesturlönd opnað landamæri sín, flutt iðnað úr landi og látið hernaðargetu hraka. Sífellt fleiri ákvarðanir væru færðar til alþjóðlegs embættismannakerfis sem væri utan seilingar almennings.
Á meðan hefðu keppinautar þeirra eflt bæði auð sinn og völd.
Vill að Evrópa vakni af löngum dvala
Rubio sagði ákvarðanir næsta áratugar myndu ráða miklu um stöðu Vesturlanda á næstu öld. Bandaríkin hefðu undir stjórn Donalds Trump valið að efla þjóðarstyrk sinn, endurbyggja varnir og iðnað og ná forystu í tækni framtíðarinnar.
Hann kallaði eftir sambærilegri stefnubreytingu í Evrópu.
„Við trúum því að Evrópa geti vaknað af löngum dvala sínum og endurvakið eldinn sem var kveiktur hér fyrir árþúsundum,“ sagði Rubio.
Hann nefndi aukin útgjöld til varnarmála og vaxandi framleiðslugetu sem merki um breytingar og hrósaði Grikklandi fyrir samstarf á sviði varnarmála, orku og landamæra.
„Við verðum að vinna saman“
Þrátt fyrir ágreining Bandaríkjanna og Evrópu sagði Rubio að ekki mætti leyfa honum að rjúfa tengslin yfir Atlantshafið. Markmiðið væri bandalag sem yrði sterkara en einstakir aðilar þess hver í sínu lagi.
„Við viljum vinna saman. Við verðum að vinna saman,“ sagði hann.
Rubio lagði jafnframt áherslu á að samstarf þjóða ætti ekki að afmá fullveldi þeirra. Þær þyrftu ekki að fórna sérkennum sínum til að þekkja sameiginlega hagsmuni.
Þjóðarhagsmunir hefðu ekki horfið með tilkomu alþjóðastofnana og stríð ekki hætt að vera veruleiki þótt menn kysu frið. Vesturlönd yrðu því að endurbyggja bandalög sín og endurheimta hugrekki og sjálfstraust til að mæta ógnunum samtímans.
Hér að neðan má sjá ræðu Rubio í heild sinni.