Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Haraldur Pálsson og Árni Sigfússon forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf varðandi könnun á fýsileika þess að leggja jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja.
Á vef Stjórnarráðsins segir að ríkið styðji við undirbúning verksins með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samvinnu við Eyjagöng um tengingu við vegakerfið.
Eyjagöng fjármagni heildstæðar rannsóknir á því hvort fýsilegt sé að fara í verkið, meðal annars hvað snertir jarðfræðilegar og tæknilegar forsendur, umhverfisþætti og umferðarspár.
Kjarnaborun á Landeyjarsandi lauk síðasta laugardag og fyrr í sumar við Klifið í Vestmannaeyjum. Þannig hefur náðst að safna öllum gögnum sem þarf til að rannsaka heildstætt hve aðlaðandi er að leggja göng milli lands og Eyja.
Þá tekur við greining þeirra verkfræðistofa sem að verkinu koma á tæknilegum og fjárhagslegum forsendum jarðgangagerðarinnar. Þeirri vinnu á að ljúka um áramót en áætlað er að rannsóknir haldi áfram næstu tvö ár.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir brýnt að ríkið greiði götu verkefnisins á þessu stigi og fagnar frumkvæði Eyjamanna. Að félaginu Eyjagöng ehf. standa sveitarfélög, fyrirtæki og fleiri fjárfestar, þar á meðal innviðasjóðurinn Innviðir sem er að stórum hluta fjármagnaður af lífeyrissjóðum.