Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé ríkisstjórnarinnar að ákveða hvernig hún bregðist við ákvörðun ESA um að höfða mál gegn Íslandi vegna bókunar 35. Hún svarar því ekki hvort Sjálfstæðisflokkurinn greiði atkvæði með eða á móti frumvarpi utanríkisráðherra um innleiðingu bókunarinnar.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, greindi frá því í dag að hún hefði höfðað mál gegn íslenskum stjórnvöldum vegna þess að Ísland hefði ekki innleitt skuldbindingar sínar með fullnægjandi hætti.
„Þessi ákvörðun kemur mér ekki á óvart miðað við hvernig þetta mál hefur þróast á síðustu misserum og samkvæmt fyrri afstöðu ESA til málsins,“ segir Guðrún.
„Þau hefðu getað klárað þetta mál á síðasta þingi. Það var mælt fyrir málinu á vorþinginu 2025 og málið fór til nefndar. Það hefði verið ríkisstjórninni í lófa lagið að klára þetta mál ef það hefði verið svona mikilvægt eins og þau láta nú að málið sé.“
Guðrún segir að það sé ríkisstjórnarinnar að bregðast við málshöfðun ESA.
„Ég vil bara leggja skýra áherslu á það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert skýra grein fyrir sínum grundvallarsjónarmiðum til málsins. Við munum leggja mikla áherslu á það að standa vörð um EES-samninginn en við leggjum líka áherslu á það að það er Alþingi sem fer með lagasetningarvaldið á Íslandi. Það er Alþingi sem á að eiga síðasta orðið í öllum þeim málum sem varða hagsmuni okkar Íslendinga.“
Guðrún svarar því ekki hvernig þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði um frumvarp utanríkisráðherra um innleiðingu bókunar 35.
„Það er ekki búið að mæla fyrir þessu máli og við erum ekki ennþá búin að taka þátt í umræðunni þannig að ég ætla ekki að úttala mig um það á þessu stigi.“
„Núna liggur þessi bolti fyrst og síðast hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hvaða leið þau ætli að fara og hvernig þau ætli að bregðast við þessari ákvörðun og gera okkur grein fyrir næstu skrefum.“
Guðrún segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé breiðfylking og þar séu mismunandi skoðanir um hvaða leið eigi að fara. „Það að fara dómstólaleiðina eins og er hér að teiknast upp hugnast einhverjum flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins og hugnast einhverjum minna. Nú er það ríkisstjórnarinnar að ákveða hvernig þær ætla að halda á þessu máli.“