Allt ætlaði um koll að keyra þegar tónlistarkonan Lily Allen gaf út plötuna West End Girl í fyrra en lögin á plötunni fjalla með hispurslausum hætti um hjónaband hennar og leikarans Davids Harbour. Titillagið fjallar um það þegar leikarinn óskaði eftir opnu hjónabandi svo hann gæti sængað hjá öðrum konum. Annað lag fjallar um samband leikarans við hjákonu sína sem Allen kallar á plötunni Madeline. Lagið Pussy Palace fjallar svo um það þegar Allen uppgötvaði að leikarinn var að sofa hjá öðrum konum á sameiginlegu heimili þeirra. Allen og Harbour giftu sig árið 2020 en greindu frá því í febrúar í fyrra að hjónabandi þeirra væri lokið. West End Girl kom út í október.
Leikarinn hefur ekki tjáð sig mikið um plötuna til þessa en hefur nú rofið þögnina í viðtali hjá Variety sem birtist í gær.
„Ég tel það vera forréttindi hvers listamanns að nota reynslu sína í listsköpun sína og ég virði hana fyrir að hafa gert það,“ sagði leikarinn sem sló í gegn í þáttunum Strangers Things. „Ég get eiginlega ekki sagt neitt meira um þetta því þetta varðar mitt einkalíf.“
Leikarinn tekur fram að vissulega séu margir á því máli að hann eigi engan rétt til einkalífs. Hann telur sig þó eiga slíkan rétt eins og aðrir og virðir þennan rétt sinn.
„Ég virði líka líf þess fólks sem ég umgengst í einkalífi mínu. Ég mun því ekki tjá mig um það.“
Síðar í viðtalinu tekur leikarinn fram að það séu margar hliðar á flestum málum lífsins. Allen hafi lýst sinni reynslu af hjónabandi þeirra, en sú reynsla er ekki sú sama og leikarans.