Nýlega var birtur úrskurður kærunefndar velferðarmála frá því í vor þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar um fella niður rétt manns til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði var staðfestur. Maðurinn hafði sagt upp starfi sínu á höfuðborgarsvæðinu og gaf þær skýringar að hann hefði neyðst til að gera það vegna þess að hann hafi ekki getað fundið húsnæði á viðráðanlegu verði og því flutt aftur til foreldra sinna á landsbyggðinni.
Rakst á vegg hjá Vinnumálastofnun eftir að hafa hætt í vinnunni vegna húsnæðisvanda